Landsþekktir menn dragast inn í Metoo-herferðina í Svíþjóð

Metoo-her­ferðin gegn kyn­ferð­is­legri áreitni og kyn­ferð­is­of­beldi hefur haft mikil áhrif í Svíþjóð á liðnum vikum. Að minnsta kosti tvær nauðg­un­ar­kærur hafa verið lagðar fram gegn lands­þekktum mönnum í kjöl­far hennar og þekktir blaða­menn og leik­arar hafa dreg­ist inn í umræð­una vegna fram­komu sinnar gagn­vart konum.

Landsþekktir menn dragast inn í Metoo-herferðina í Svíþjóð
Leiddi af sér Metoo-her­ferð­ina Umfjöllun fjöl­miðla í Banda­ríkj­unum um mál kvik­mynda­fram­leið­and­ans Harvey Weinstein – fjöldi kvenna hefur stigið fram og ásakað hann um nauðg­anir og kyn­ferð­is­lega áreitni – hefur leitt af sér Metoo-her­ferð­ina um allan heim. Áhrif her­ferð­ar­innar eru sér­stak­lega mikil í Svíþjóð þar sem nýjar fréttir, sem eru afleið­ingar hennar, hafa komið upp nán­ast á hverjum degi síð­ustu vik­urnar.

Metoo-her­ferðin hefur haft miklar afleið­ingar í Svíþjóð síð­ustu vik­urnar. Lands­þekktir fjöl­miðla­menn, leik­arar, uppi­stand­arar og stjórn­mála­menn hafa dreg­ist inn í umræð­una í land­inu um kyn­ferð­is­lega áreitni gagn­vart konum og í nokkrum til­fellum er um að ræða nauðg­un­ar­til­raunir sem hafa komið upp á yfir­borðið. Á þess­ari stundu er ómögu­legt að segja hvert umræðan um metoo-her­ferð­ina mun fara í Svíþjóð og hverjar afleið­ingar hennar verða; á hverjum degi nán­ast koma fram nýjar og nýjar sögur um kyn­ferð­is­lega áreitni í hinum ýmsu geirum sam­fé­lags­ins. Nú þegar hafa leikkonur, söng­konur, lög­fræð­ingar, flug­freyjur og fleiri hópar stigið fram sam­eig­in­lega og sagt sögur sínar opin­ber­lega, meðal ann­ars í sænskum dag­blöðum og á sér­stökum sam­komum sem haldnar hafa verið. 

Alyssa MilanoLeik­konan fékk þá hug­mynd að beina þeim til­mælum til kvenna sem hefðu orðið fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni að segja sögu sína undir undir Twitter-hashtagg­inu #metoo.

Hugmynd Milanos

Metoo-her­ferðin hófst í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

Tomasz þvertekur fyrir ásakanir um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi
InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetrators actually take responsibility“
InnlentMetoo

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
Gylfi Þór hættur hjá Everton
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna líkamsárásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í andlitið“
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár