75 virkir sjálf­boða­liðar Ásamt Svölu eru sjálf­boða­lið­arnir Guðrún Ingi­björg Rún­ars­dóttir og Birgir Ásþórs­son á þess­ari vakt. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ótti við heróínbylgju

Götuverð á mor­fíni hefur tvö­fald­ast í kjöl­far hertra reglna Embættis land­læknis sem skerðir aðgengi að lækna­dópi. Verk­efna­stýra Frú Ragn­heiðar ótt­ast að ef verðið haldi áfram að hækka að þá muni heróín rata til lands­ins í auknum mæli og að þá muni mikið af fólki í þessum jað­ar­setta hópi falla frá.

Verð á efnum eins og mor­fíni og ríta­líni á göt­unni hafa tvö­fald­ast á aðeins einu ári eftir að nýr lyfja­gagna­grunnur var tek­inn upp.

Fram­kvæmd­ar­stýra Frú Ragn­heiðar, sem starfar við að útvega sprautu­fíklum hreinar sprautur, varar við því að heróín og önnur hættu­leg vímu­efni muni ná fót­festu á land­inu vegna aðgerð­anna gegn aðgengi að mor­fíni.

Hún segir að skjól­stæð­ingar þurfi að leggja miklu meira á sig til að hafa efni á skömmtum til að halda sér frá frá­hvarfsein­kennum. Sér­fræð­ingur Embætti land­læknis ver ákvörð­un­ina sem lið í því að berj­ast gegn ofskömmtum sem juk­ust um þriðj­ung frá 2015 til 2016.

Kerfi vinnur gegn læknarápi

 

Ólafur B. Ein­ars­son, verk­efna­stjóri hjá eft­ir­lits- og frá­viks­sviði Embætti land­læknis, segir Stund­inni að nýja kerfið hafi verið tekið upp til að berj­ast gegn læknarápi, þar sem ein­stak­lingar verða sér úti um marga lyf­seðla fyrir sterkum og ávana­bind­andi lyfjum frá mis­mun­andi læknum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár