Mynd: Heiða Helgadóttir

„Áfallið situr í líkamanum“

Alvar­legar and­legar, félags­legar og lík­am­legar afleið­ingar hljót­ast af kyn­ferð­is­of­beldi í æsku. Konur beina sárs­auk­anum inn á við og verða lík­am­lega veikar, jafn­vel öryrkjar, á meðan karlar beina honum út sem brýst út með and­fé­lags­legri hegðun og jafn­vel afbrotum. Dr. Sigrún Sig­urð­ar­dóttir kallar á eftir þver­fag­legu þjóð­ar­átaki gegn kyn­ferð­is­legu ofbeldi.

„Þetta eru verstu brotin,“ segir dr. Sigrún Sig­urð­ar­dóttir, lektor á heil­brigð­is­vís­inda­sviði við Háskól­ann á Akureyri, um kyn­ferð­is­of­beldi gegn börnum, en hún hefur síð­ast­liðin þrettán ár rann­sakað afleið­ingar kyn­ferð­is­legs ofbeldis í æsku. Hún segir erfitt að sjá menn í valda­stöðum, líkt og Brynjar Níelsson, þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gera lítið úr kyn­ferð­is­brotum gegn börnum og segja að til séu verri brot. Því fá brot hafi jafn alvar­legar félags­legar, and­legar og lík­am­legar afleið­ingar á brota­þola og að verða fyrir kyn­ferð­is­legu ofbeldi sem barn eða ung­lingur.

Berskjölduð fyrir fleiri áföllum

Sigrún starf­aði áður sem lög­reglu­kona. Í störfum sínum varð hún vitni að öllum teg­undum ofbeldis, en hún sá það ekki sem heil­brigð­is­vanda­mál fyrr en hún skipti um vett­vang og fór að læra hjúkrun og síðar heil­brigð­is­vís­indi. „Í nám­inu fór ég á fyr­ir­lestur á Ólafs­firði þar sem þol­andi, kona sem hafði orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi, sagði frá því hvernig heilsan hrundi í kjöl­far áfalls­ins. Við …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár