Tengdafaðir varaformanns Viðreisnar skipaður ráðuneytisstjóri án auglýsingar

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son nýtir sér heim­ild í lögum um utan­rík­is­þjón­ustu til að skipa ráðu­neyt­is­stjóra án aug­lýs­ingar. Óttarr Proppé og Björt Ólafs­dóttir, sam­ráð­herrar hans, börð­ust gegn fyr­ir­komu­lag­inu á síð­asta kjör­tíma­bili. Ráðu­neyt­is­stjór­inn er tengda­faðir vara­for­manns Við­reisnar og for­manns utan­rík­is­mála­nefndar Alþingis, en nefnd­inni er falið að veita fram­kvæmda­vald­inu aðhald í utan­rík­is­málum.

Tengdafaðir varaformanns Viðreisnar skipaður ráðuneytisstjóri án auglýsingar
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son Utan­rík­is­ráð­herra skip­aði tengda­föður for­manns utan­rík­is­mála­nefndar Alþingis ráðu­neyt­is­stjóra í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. Hann nýtti sér und­an­þágu­heim­ild til að skipa í stöð­una án aug­lýs­ingar. Mynd: xd.is

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra hefur skipað Sturlu Sig­ur­jóns­son sendi­herra sem ráðu­neyt­is­stjóra í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. Hann á að baki 30 ára feril í utan­rík­is­þjón­ust­unni og gegndi síð­ast stöðu sendi­herra Íslands í Kanada.

Ólíkt því sem tíðkast þegar skipað er í sams konar emb­ætti í öðrum ráðu­neytum hefur utan­rík­is­ráð­herra heim­ild til að víkja frá aug­lýs­inga­skyldu við skipun ráðu­neyt­is­stjóra og sendi­herra sam­kvæmt lögum um utan­rík­is­þjón­ustu Íslands.

Óttarr Proppé og Björt Ólafs­dóttir, ráð­herrar í núver­andi rík­is­stjórn, börð­ust gegn fyr­ir­komu­lag­inu á síð­asta kjör­tíma­bili og lögðu tví­vegis fram frum­varp um að und­an­þágu­heim­ildin yrði felld út úr lögum.

Sturla er tengda­faðir Jónu Sól­veigar Elín­ar­dóttur, þing­konu og vara­for­manns Við­reisnar og for­manns utan­rík­is­mála­nefndar Alþingis.

Á meðal hlut­verka utan­rík­is­mála­nefndar sam­kvæmt 24. gr. þing­skap­ar­laga er að vera „rík­is­stjórn­inni til ráðu­neytis um meiri háttar utan­rík­is­mál,“ en ákvæðið hefur verið túlkað sem svo að nefnd­inni beri að veita fram­kvæmda­vald­inu aðhald á sviði utan­rík­is­mála (sjá t.d. grein Bjargar Thoraren­sen, pró­fess­ors við laga­deild HÍ og sér­fræð­ings í stjórn­skip­un­ar­rétti, Stjórn­ar­skráin og með­ferð utan­rík­is­mála, bls. 58 og 59).

Áður en Sturla gegndi stöðu sendi­herra í Kanada var hann sendi­herra Íslands í Danmörku, ráð­gjafi for­sæt­is­ráð­herra um utan­rík­is­mál og sendi­herra á Indlandi. Fram kemur í frétta­til­kynn­ingu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins að í starfi sínu hafi Sturla gegnt ýmsum ábyrgð­ar­stöðum, meðal ann­ars verið skrif­stofu­stjóri alþjóða­skrif­stofu og áður varn­ar­mála­skrif­stofu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
5
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár