MS missir spón úr aski sínum: Skyr er vörutegund en ekki vörumerki

Sænskur dóm­stóll hefur numið úr gildi einka­leyfi sam­starfs­fyr­ir­tækis MS á notkun orðs­ins „skyr“. Dómurinn opnar fyrir mögu­leika á sam­keppni á fram­leiðslu skyrs. Ari Edwald, for­stjóri MS, seg­ist ekki hafa haft trú á að halda vöru­merk­inu.

MS missir spón úr aski sínum: Skyr er vörutegund en ekki vörumerki
Skyr er eins og flestar aðrar mjólk­ur­vörur Samkvæmt nið­ur­stöðum sænskra dóm­stóla er skyr ekki frá­brugðið mjólk, rjóma, smjöri eða osti og getur því ekki verið einka­leyf­is­verndað vöru­merki heldur er skyrið vöru­teg­und. MS missir því einka­leyfið sem fyr­ir­tækið hefur haft, gegnum sænskan sam­starfs­að­ila, á því að selja skyr í Svíþjóð.

Sam­starfs­að­ili Mjólk­ur­sam­sölu Íslands (MS) í Svíþjóð hefur tapað einka­leyf­inu á því að nota vöru­merkið „skyr“ í land­inu. Samkvæmt dómi í sér­stökum einka­leyf­is­dóm­stóli í Stokk­hólmi, sem heitir Patent- och marknads­domsto­len, frá því í lok júlí, er skyr vöru­teg­und en ekki sér­stakt vöru­merki sem fyr­ir­tæki getur haft einka­leyfi á. Þess vegna er ekki hægt að skrá orðið skyr sem einka­leyf­is­skylt vöru­merki. Tapið opnar fyrir mögu­leik­ann á sam­keppni í fram­leiðslu á skyri í Svíþjóð frá öðrum fyr­ir­tækjum og getur haft áhrif á tekjur MS. 

Skyr er eins og mjólk, rjómi og ostur

Skyr kom á mark­að­inn í Svíþjóð fyrir tæpum sex árum síðan. Fram­leið­and­inn er sænska fyr­ir­tækið Kavli sem er sam­starfs­að­ili Mjólk­ur­sam­söl­unnar á Íslandi. Kavli fékk orðið skyr skráð í Svíþjóð sem sér­stakt vöru­merki en ákvörð­un­inni var áfrýjað til dóm­stóla af mjólk­ur­vöru­fyr­ir­tæk­inu Skå­nem­ejerier. Skå­nem­ejerier hefur nefni­lega í mörg ár sýnt því áhuga að mark­aðs­setja skyr í Svíþjóð undir sínu nafni. Vöru­merkja­skrán­ingin …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dómsmál

FréttirDómsmál

Ógnaði heim­il­is­fólki með heima­gerðu sverði

Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands dæmdi fyrir skömmu mann fyrir lík­ams­árás, hús­brot og akstur undir áhrifum áfengis. Í lýs­ingum vitna er sagt frá því að mað­ur­inn hafi kýlt heim­il­is­mann sem reyndi að koma í veg fyrir að mað­ur­inn kæmi inn um glugga á hús­inu. Þá er einnig sagt frá því að mað­ur­inn hafi á einum tíma­punkti dregið fram heima­gert sverð á sveiflað því í kringum sig fyrir utan húsið.

Mest lesið

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár