Skólasetningu Háaleitisskóla frestað vegna magakveisu

Rúmur helm­ingur starfs­liðs Háleit­is­skóla er frá vinnu vegna óút­skýrðrar maga­kveisu.

Skólasetningu Háaleitisskóla frestað vegna magakveisu
Háa­leit­is­skóli Setja átti skóla­hald á morgun en því hefur verið frestað fram á fimmtu­dag. Rúmur helm­ingur starfs­liðs skól­ans glímir við maga­kveisu og rann­sakar heil­brigð­is­eft­ir­litið orsök hennar.

„Það hefur ekk­ert komið í ljós hvað amar að fólk­inu,“ segir Hanna Guðbjörg Birg­is­dóttir, skóla­stjóri Háleit­is­skóla. Skóla­setn­ing í Háa­leit­is­skóla í Hvasa­leiti átti að fara fram á morgun en henni hefur verið frestað fram á fimmtu­dag. „Þetta er maga­kveisa. Á aðfar­arnótt fimmtu­dags í síð­ustu viku fengu fyrstu starfs­menn skól­ans ein­kenni. Síðan þá hafa menn verið að detta inn og út úr því,“ segir Helgi Grímsson, svið­stjóri skóla- og frí­stunda­sviðs Reykja­vík­ur­borgar.

Helgi Grímsson, svið­stjóri skóla- og frí­stunda­sviðsSegir að ákveðið hafi verið að fresta skóla­setn­ing­unni vegna þess að orsök veik­ind­anna liggur ekki fyrir.

Í skól­anum starfa 36 manns og er rúmur helm­ingur starfs­liðs­ins frá störfum vegna veik­inda. „Heil­brigð­is­eft­ir­litið hefur verið hérna í allan dag og tekið við­tal við allt starfs­fólkið. Þá hafa starfs­menn skilað sýnum til heil­brigð­is­yf­ir­valda en það tekur tíma að fá nið­ur­stöðu úr grein­ing­unni,“ segir Hanna Guðbjörg.

„Það eru taldar minni líkur en meiri að um Nóró-veiruna sé að ræða vegna þess að ekk­ert af heim­il­is­fólki starfs­mann­anna hefur smit­ast,“ segir Helgi. Hann telur að um ein­hvers konar mat­ar­eitrun sé að ræða en beðið er eftir nið­ur­stöðum á grein­ingum heil­brigð­is­eft­ir­lits­ins.

Ákveðið var að fresta skóla­setn­ing­unni vegna þess að orsök veik­ind­anna liggur ekki fyrir. „Við ákváðum að fresta henni til að vera ekki að tefla í neina tví­sýnu varð­andi börnin og koma í veg fyrir að þau veik­ist,“ segir Helgi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár