Ed Negra leggur fjögur bréf á borðið á verönd sinni með útsýni yfir skóg í austurhluta Pennsylvaníu. Öll eru þau frá framkvæmdaraðila sem lofar hverju heimili ávísun upp á 10.000 dollara, eða um 1,2 milljónir króna, þegar gagnaver hans hefur tekið til starfa.
„Ég kalla þetta mútur,“ segir Negra, bandarískur eftirlaunamaður.
Umhverfið er eins og af póstkorti. Haustlauf taka á sig rauðbrúnan lit og fjallasýnin er stórbrotin í þessum hluta Pennsylvaníu, eins af lykilríkjunum í kosningunum sem fram undan eru í Bandaríkjunum um mitt kjörtímabil forseta.
„Okkur fannst þetta fallegur staður til að eyða eftirlaunaárunum,“ segir Negra, sem er á áttræðisaldri. Áður stýrði hann stórri byggingavöruverslun í nágrannaríkinu New Jersey.
Hann og eiginkona hans settust að í víðáttumiklu, afgirtu íbúðahverfi þar sem gæsla er allan sólarhringinn.
Í Eagle Rock Resort í Hazle Township standa hundruð þægilegra húsa á víð og dreif í skóginum. …




























Athugasemdir