„Kannast ekki við þá mynd sem hefur verið dregin þar upp“

Guðrún Haf­steins­dóttir krafði Ingu Sæland svara um hver hafi ákveðið afsögn Guð­mundar Inga Krist­ins­sonar úr rík­is­stjórn. Í skila­boðum sem aðstoð­ar­kona hans sendi honum í jan­úar sagði að ákvörð­unin hefði verið tekin af „val­kyrj­unum“. Inga segir þau Guðmund Inga greina á um aðdrag­anda máls­ins og stendur við sínar ákvarð­anir.

„Kannast ekki við þá mynd sem hefur verið dregin þar upp“
Stendur við sitt Inga Sæland seg­ist standa við þær ákvarð­anir sem hún tók í kringum brott­hvarf Guð­mundar Inga úr rík­is­stjórn Kristrúnar Frosta­dóttur. „Val­kyrj­urnar“ voru, í skila­boðum aðstoð­ar­manns Guð­mundar Inga til hans, sagðar hafa tekið ákvörðun um að hann ætti að víkja. Mynd: Golli

Inga Sæland, mennta- og barna­mála­ráð­herra og for­maður Flokks fólks­ins, seg­ist ekki kann­ast við þá mynd sem dregin hefur verið upp af brott­hvarfi Guð­mundar Inga Krist­ins­sonar úr rík­is­stjórn. Hún segir þau Guðmund Inga greina á um aðdrag­anda og ástæður þess að hann lét af emb­ætti og stendur við þær ákvarð­anir sem hún tók.

Þetta sagði Inga í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í dag eftir að Guðrún Haf­steins­dóttir, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, krafði hana svara vegna skila­boða sem Guðbjörg Ingunn Magn­ús­dóttir, þáver­andi aðstoð­ar­kona Guð­mundar Inga, sendi honum áður en hann lét af emb­ætti.

„Ég held að þér væri nær að stíga inn í eigin skíta­pott og reyna að hræra aðeins upp í honum í stað þess að koma hér fram með dylgjur og ósann­indi“
Inga Sæland
mennta- og barna­mála­ráð­herra

Í skila­boð­unum, sem RÚV birti í dag, sagði Guðbjörg að ákvörð­unin væri „ein­göngu val­kyrj­anna“ og að Guð­mundur Ingi gæti ann­að­hvort til­kynnt veik­inda­leyfi og snúið síðar aftur á Alþingi eða „farið í stríð“.

Leið­togar rík­is­stjórn­ar­innar, þær Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra og Inga Sæland, fengu snemma við­ur­nefnið Val­kyrj­urnar.

Spurði hvort þetta væri enn „bara upplifun“

Guðrún sagði skila­boðin varpa nýju ljósi á ástæður þess að Guð­mundur Ingi lét af ráð­herra­emb­ætti. 

„Nú er það skjal­fest í skila­boði fyrr­ver­andi aðstoð­ar­manns, sem er jafn­framt eig­in­kona hæst­virts félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, að það voru val­kyrj­urnar sem ráku hátt­virtan þing­mann og fyrr­ver­andi ráð­herra. Honum var hótað stríði ef hann myndi ekki hlýða og hann fékk ekki einu sinni að rita upp­sagn­ar­bréfið sjálfur,“ sagði Guðrún.

Hún vís­aði til fyrri við­bragða Ingu við ásök­unum Guð­mundar Inga um að honum hefði verið bolað úr emb­ætti. Inga sagði þá að Guð­mundur Ingi væri að lýsa sinni upp­lifun en að hennar upp­lifun væri allt önnur.

„Er þetta enn þá bara upp­lifun þing­manns­ins?“ spurði Guðrún í dag.

Hún spurði jafn­framt hvort Inga vildi biðja Guðmund Inga eða þjóð­ina afsök­unar og sak­aði ráð­herra um að hafa ekki sagt rétt frá aðdrag­anda brott­hvarfs hans.

Segir fleiri en eina hlið á málinu

Inga sagði ráð­herra­starfi fylgja mikla ábyrgð og mikið álag og að stundum þyrfti að taka erf­iðar ákvarð­anir. „Það er ljóst að okkur Guðmund Inga greinir á um aðdrag­anda og ástæður þeirra breyt­inga sem urðu. Ég kann­ast ekki við þá mynd sem hefur verið dregin þar upp,“ sagði hún.

Inga vís­aði í kjöl­farið til veik­inda Guð­mundar Inga og þess að hún hefði sjálf gegnt emb­ætti hans á meðan hann var í veik­inda­leyfi.

„Takið ábyrgð á ykkar störfum og byrjað á að segja sann­leik­ann“
Guðrún Haf­steins­dóttir
for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins

„Þegar mér varð ljóst í hversu stóra aðgerð Guð­mundur Ingi fór þá lá það ljóst fyrir að mennta- og barna­mála­ráðu­neytið gæti ekki svo vikum og jafn­vel mán­uðum skipti verið án öruggrar for­ystu.“

Hún sagði fleiri en eina hlið vera á mál­inu en að hún teldi ekki rétt að ræða per­sónu­leg mál­efni eða heilsu­far Guð­mundar Inga frekar á opnum vett­vangi.

„Mér þykir leitt að sam­skiptin hafi þró­ast með þessum hætti. Ég ber ábyrgð á mínum ákvörð­unum og ég stend við þær. Um leið virði ég að Guð­mundur upp­lifði málið með öðrum hætti en ég.“

Inga svar­aði hins vegar ekki sér­stak­lega þeirri full­yrð­ingu í skila­boðum Guð­bjargar að ákvörð­unin hefði verið tekin af „val­kyrj­unum“.

„Stíga inn í eigin skítapott“

Guðrún sagði í seinni ræðu sinni að gögn styddu það sem hún hefði haldið fram og gagn­rýndi breyt­ingar sem orðið hafa á skipan rík­is­stjórn­ar­innar. „Það er lág­marks­krafa að rík­is­stjórnin sýni gagn­sæi í sínum störfum, sýni ábyrgð og segi satt og rétt frá,“ sagði hún.

Ráðherra eigi að segja af sér ef þeir gætu ekki veitt almenn­ingi skýr og sann­fær­andi svör. „Nú er nóg komið. Takið ábyrgð á ykkar störfum og byrjað á að segja sann­leik­ann.“

Orða­skiptin hörðn­uðu enn frekar þegar Inga tók aftur til máls. Hún mót­mælti meðal ann­ars full­yrð­ingu Guðrúnar um fjölda þeirra sem hefðu gegnt emb­ætti mennta- og barna­mála­ráð­herra og sak­aði hana um dylgjur og ósann­indi.

Skila­boðinAðstoð­ar­kona Guð­mundar Inga sagði í skila­boðum til hans, sem RÚV birti fyrr í dag, að hann ætti þann kost að snúa til baka á þing eða fara í stríð. Val­kyrj­urnar hefðu ákveðið að hann ætti að hætta sem ráð­herra.

„Þannig að hátt­virtur þing­maður, ég held að þér væri nær að stíga inn í eigin skíta­pott og reyna að hræra aðeins upp í honum í stað þess að koma hér fram með dylgjur og ósann­indi,“ sagði Inga.

Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, for­seti Alþingis, greip þá inn í og bað ráð­herra að gæta orða sinna. Að loknum orða­skipt­unum ítrek­aði for­seti að ráð­herrar og þing­menn skyldu gæta kurt­eisi í ræðu­stól Alþingis.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Átök í Flokki fólksins

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár