Donald Trump Bandaríkjaforseti gefur til kynna að markmið hans sé að Bandaríkin yfirtaki Grænland fyrir árið 2029.
Í símaviðtali í síðustu viku gaf hann til kynna að hann sæti fastur við sinn keip varðandi fyrri áform um innlimun landsins, þvert gegn andstöðu grænlensku þjóðarinnar og grænlenskra og danskra stjórnvalda.
Nokkrum vikum eftir að Donald Trump forseti ítrekaði kröfu sína um að Bandaríkin fengju yfirráð yfir Grænlandi, fullvissaði hann hægrisinnaðan sjónvarpsþáttastjórnanda um að það væri öruggt að það myndi gerast.
„Þú ert líka enn að horfa til Grænlands,“ spurði Steve Gruber, þáttastjórnandi „Real America's Voice“, Trump í síma í síðustu viku. „Ég spáði því í þessum þætti að áður en þú létir af embætti yrði Grænland undir okkar stjórn. Það er enn ótrúlega mikilvægt til að verja vesturhvel jarðar, er það ekki?“
„Já, þú munt hafa rétt fyrir þér,“ svaraði Trump. „Grænland er mikilvægt frá okkar sjónarhorni. Ekki frá þeirra sjónarhorni. Heldur frá okkar sjónarhorni. Já, þú ættir eiginlega að veðja á það.“
„Ég veðjaði á það og ég held að það sé ótrúlega mikilvægt,“ svaraði Gruber.
Líkt og gagnvart Íslandi eru Bandaríkin með varnarsamning um Grænland, sem gerður var við dönsk stjórnvöld 1951. Það hefur þó ekki komið í veg fyrir að Bandaríkjaforseti hóti að innlima landið með valdi, en síðar hefur hann gefið til kynna að samið verði um það.
Trump hefur sagt að Bandaríkin hafi gert mistök með því að „skila“ Grænlandi aftur til Danmerkur eftir Seinni heimsstyrjöldina.
Á NATO-fundinum í Ankara í Tyrklandi í júlí sagði Trump aftur að Grænlandi „ætti að vera stjórnað af Bandaríkjunum, en ekki Danmörku“.

































Athugasemdir