Rándýrin rata til Finnlands

Hrein­dýra­bænd­ur í Finn­landi lýsa veru­leika sín­um við að reka norð­ur­slóða­bú­skap, þeg­ar reglu­gerð­ir Evr­ópu­sam­bands­ins ger­ir þeim erfitt fyr­ir að ná stjórn á rán­dýr­un­um sem ráð­ast á dýr­in. Þrátt fyr­ir rík­is­styrki reyn­ist rekst­ur­inn þung­ur en ferða­þjón­ust­an veg­ur upp á móti.

Rándýrin rata til Finnlands
Juha Kujala Hreindýrahirðir í Lapplandi.

„Fjölskyldan mín hefur verið á svæðinu í meira en 400 ár,“ segir Juha Kujala, hreindýrahirðir í Lapplandi. Hann hefur helgað líf sitt því að viðhalda aldagamalli lífsafkomu, en hver er reynsla Finna af búskap á norðurslóðum innan Evrópusambandsins?

Þeir Juha og Ari Maununiem lýsa tækifærum og áskorunum við að viðhalda landbúnaði á einu nyrsta svæði Evrópu. 

Juha er fimmta kynslóð hreindýrahirða og ólst upp við hefðir og venjur hreindýrabúskapar sem hann lærði áður en hann tók við rekstrinum af föður sínum. Sjálfur lýsir hann sér sem hreindýrahirði frá blautu barnsbeini. 

Hann býr með eiginkonu sinni, Jenni, og saman ala þau upp fjóra syni. Því vonast hann til þess að hirðishefð fjölskyldunnar haldi áfram með næstu kynslóð. Jenni gegnir einnig mikilvægu hlutverki í fjölskyldufyrirtækinu. „Konan mín er listamaður. Hún býr til list, teiknar og gerir málverk, en býr líka til handverk úr hreindýrahornum og gæru.“ 

Opnaði heim hreindýra fyrir fólki …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Í heimi þar sem maðurinn væri ekki til myndi nást náttúrulegt jafnvægi á fjölda rándýra og hreindýra sem virkar þannig að ef rándýrunum fjölgar þá fækkar hreindýrunum og á endanum verða ekki nógu mörg hreindýr fyrir öll rándýrin svo þeim fer að fækka vegna fæðuskorts. Fækkun rándýrana veldur því hinsvegar að hreindýrunum fjölgar aftur og þannig myndast náttúruleg sveifla í fjölda rándýra og hreindýra yfir tíma. Hversu löng sveiflan er eða hversu mikil hún er fer eftir eðli dýranna.
    Þegar maðurinn síðann kemur til skjalana og fer að stjana við hreindýrin þannig að þeim fjölgar ónáttúrulega mikið þá fá rándýrin ónáttúrulega mikið að éta og fjölgar ónáttúrulega mikið og það þarf að leysa með því að lóa eitthvað af rándýrunum. Þau sem setja reglur um verndun rándýra þurfa að átta sig á þessu.

    Sama lögmál gildir um refinn og rjúpuna á Íslandi að stofnstærðirnar sveiflast upp og niður yfir tíma, en með annarskonar sveiflum heldur en fyrir hreindýr og úlfa, enda eðli dýranna ekki það sama.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár