„Því miður virðist ekki vera meiri samkeppni en þetta“

Vaxta­munur, einn helsti mæli­kvarði á álagn­ingu bank­anna, hefur hækkað og er mun hærri en á Norð­ur­löndum. Formaður Neyt­enda­sam­tak­anna hvetur Sam­keppn­is­eft­ir­litið til að skoða hvort þög­ult sam­ráð bank­anna sé til staðar.

„Því miður virðist ekki vera meiri samkeppni en þetta“
Breki Karlsson Formaður Neyt­enda­sam­tak­anna segir hag­ræð­ingu bank­anna ekki skila sér í betri kjörum fyrir neyt­endur. Mynd: Golli

Vaxta­munur íslensku bank­anna gefur til kynna skort á sam­keppni. Á sama tíma og hag­rætt er í rekstri eykst gjald­taka, sem sýnir að sparn­að­ur­inn skilar sér ekki til neyt­enda. Þetta er mat Breka Karls­sonar, for­manns Neyt­enda­sam­tak­anna.

Lands­bank­inn birti upp­gjör vegna fyrri hluta árs­ins á dög­unum en þar kom fram að vaxta­munur, það er mun­ur­inn á útláns­vöxtum bank­ans og inn­láns­vöxtum, hefði hækkað í 3,4%. Á sama tíma­bili í fyrra var hann 2,9%.

Í upp­gjöri Íslands­banka vegna ann­ars árs­fjórð­ungs má sjá að vaxta­munur á fjórð­ungnum var 3,4% miðað við 3,3% sama fjórð­ung árið áður. Hjá Arion banka var vaxta­mun­ur­inn 3,5% á fjórð­ungnum, óbreyttur frá sama tíma­bili ári áður.

Sveifl­urnar voru sagðar að mestu tengj­ast verð­bólgu­á­hrifum en verð­bólga hefur hald­ist yfir 5% á árs­grund­velli frá upp­hafi árs, sem skýrist að hluta af áhrifum stríðs­ins í Íran. …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Er ekki augljóst hvers vegna eigendur bankanna vilja halda í krónuna ?
    1
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      Er það svo og hvað kemur það málinu við? Hvorki vextir né verðtrygging eru skrifuð á peningaseðla, heldur lánasamninga. Seðlabankar ákveða ekki vexti húsnæðislána, það gera lánveitendur á öllum helstu myntsvæðum Vesturlanda.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár