Nú í ágúst kjósa margir ungir kjósendur í fyrsta sinn í kosningum þar sem þau þurfa að taka skýra afstöðu. Já eða nei, enginn millivegur.
Hvernig reyna þessar tvær hliðar að höfða til ungra kjósenda?
Á síðastliðnum þjóðhátíðardegi var stofnuð þverpólitíska ungliðahreyfingin Xnei sem er sameinað afl ungliðahreyfinga fimm mismunandi stjórnmálaflokka. Þau eru aðeins með viðveru á Instagram og Facebook, þar sem þó nokkrar myndir hafa verið birtar frá stofnfundinum.
Myndirnar eru allar svarthvítar og í horninu stendur Xnei þar sem X-ið er rauðlitað. Myndirnar eru drungalegar og rauða X-ið hádramatískt. Nei er jú neikvætt orð.
Hreyfingin Áfram Ísland segist hinsvegar vera fyrir jákvæða Nei-sinna, en miðað við ræðumenn þeirra og fundarsali er augljóst að þau eru ekki að reyna að höfða til ungs fólks.
Jákvæðni og bjartsýni virka oftast betur í pólitískum framboðum fremur en neikvæðni og bölsýni. Hreyfingin Já til að Sjá var stofnuð daginn eftir þjóðhátíðardaginn núna í júní. Hún er með miklu meiri viðveru á samfélagsmiðlum þar sem þau gera vönduð myndbönd sem eiga að vera fræðandi.
Hreyfingin einblínir á bjartsýnishyggju um framtíð Íslands í Evrópu. Hreyfingin notar fagurfræði sem er fullkomlega andstæð við þrúgandi stílinn hjá Xnei, en gengur oft einum of langt.
„Ofuráhersla á slagorð er óþarfi þegar þú ert að berjast fyrir annan af tveimur valkostum“
Bjartsýni og slagorð eru mjög nytsamleg í góðri kosningabaráttu og til að ná til ungs fólks, en ofuráhersla á slagorð er óþarfi þegar þú ert að berjast fyrir einn af tveimur valkostum. Orðaleikir eins og #jágúst hljóma kjánalega fyrir óákveðið ungt fólk. Einnig er orðræða sem gerir aðildarviðræður við stærsta efnahags- og stjórnmálasamband mannkynssögunnar að krúttlegum fundi yfir kaffibolla oft óbærileg.
Já er nú jákvætt orð, en margir Evrópusinnar gera það einum of væmið. Þetta er yfirborðskennd greining, en svona líta kosningarnar út fyrir margt ungt fólk. Nú er það að taka afstöðu.
Hvor hliðin er minna óþolanleg?
Já eða nei?
Væmni eða bölsýni?
















































Athugasemdir