Kalla eftir alþjóðlegum aðgerðum gegn „öfgafullu vinstri fólki“

Utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna segir „hryðju­verka­fólk“ undir yfir­skini „jafn­réttis, rétt­lætis og frelsis“ vera „ein­staka illsku“. Stephen Miller, hægri hönd for­set­ans, segir vinstri­menn dreifa „krabba­meini“ í sam­fé­lag­inu. „Þau eru öll afmynduð á ein­hvern hátt í útliti, klæða­burði og hátta­lagi,“ segir hann.

Kalla eftir alþjóðlegum aðgerðum gegn „öfgafullu vinstri fólki“
Marco Rubio Heldur opn­unará­varp í kvöld á við­burði um „end­ur­komu póli­tískra hryðju­verka“. Mynd: AFP

Banda­rísk stjórn­völd boða alþjóð­lega her­ferð gegn vinstri öfga­stjórn­málum, sem þeir kalla hryðju­verka­stefnu.

Marco Rubio, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, kall­aði eftir alþjóð­legri sam­vinnu í bar­átt­unni gegn „nýrri bylgju þess­arar gömlu mein­semdar“ sem hann sagði koma fram undir yfir­skini „jafn­réttis, rétt­lætis og frelsis“. 

Fundur í kvöld

Í upp­hafs­ávarpi á ráð­herra­fundi um „end­ur­komu stjórn­mála­hryðju­verka“ sagði Rubio að „hryðju­verk lengst til vinstri“ hefðu orðið „blindur blettur“ eftir að athyglin beind­ist að öfgum ísla­mista í kjöl­far árásanna 11. sept­em­ber 2001. Hann sagði vinstri hryðju­verk vera „ein­staka illsku“.

„Jafnvel í dag er litið á þá hug­mynd að hryðju­verk lengst til vinstri gætu verið alvar­leg ógn sem hug­ar­óra hægri­manna eða, það sem verra er, sem hættu­legt fasískt sam­særi,“ sagði hann.

Rubio vís­aði til fjölg­unar árása vinstri­manna í Evrópu og Banda­ríkj­unum frá árinu 2016 og kall­aði eftir auk­inni sam­vinnu í bar­átt­unni gegn hug­mynda­fræði sem hann lýsti sem „eitr­aðri gremju sem er hulin yfir­skini …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Saevar Helgason skrifaði
    Það er sagt að einhverjir frá Íslandi hafi sótt þessa ráðstefnu...?
    Það væri ágætt að gá upplýsingar um hverjir það eru, vegna þess að ég efast um að Alþingi eða eitthvað stjórnvald hafi sent fulltrúa á hana fyrir Íslands hönd...?
    2
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Hver þarf hryðjuverkamenn sem hefur stjórnvöld eins og Bandaríkin hafa núna?
    8
  • Grétar Reynisson skrifaði
    Er sjötti áratugur síðustu aldar kominn á „repeat” hjá þessum skúnkum ?
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár