Hagar auka hagnað sinn um 65%

Kallað var eftir sam­stöðu um bar­áttu gegn verð­bólgu, en hagn­aður eykst af versl­unum. Stríðið við Persaflóa jók hagnað Haga.

Forstjóri Haga
For­stjóri Haga Finnur Oddsson, sem leiðir Haga, sagði i met­hagn­aði í fyrra að með­byr væri í rekstri versl­ana. Nú eykst hagn­að­ur­inn. Mynd: Origo

Versl­ana­fé­lagið Hagar, sem rekur Bónus, Hagkaup, Olís og fleiri keðjur, jók hagnað sinn milli ára um 64,5% á fyrsta árs­fjórð­ungi, vegna „áhrifa hækk­aðs heims­mark­aðs­verðs olíu“ og „sterk­ari rekstrar versl­ana og vöru­húsa á Íslandi.“

Hagar högn­uð­ust þannig um 1,9 millj­arða króna frá 1. mars til 31. maí síð­ast­lið­ins, en aðeins um 1,17 millj­arða í fyrra, sem þó reynd­ist metár í rekstri Haga. Í fyrra sagði Finnur Oddsson, for­stjóri Haga, að það væri „með­byr í rekstri versl­ana og vöru­húsa á Íslandi“.

Barist gegn verð­bólgu

Verð á mat og drykk hefur hækkað um 3,9% síð­ustu 12 mán­uði. Til þess að bregð­ast við verð­bólgu og fyr­ir­byggja að hún fari yfir for­sendu­á­kvæði kjara­samn­inga í ágúst lækk­aði rík­is­stjórnin virð­is­auka­skatt á elds­neyti úr 24% í 11% í apríl.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Samtaka atvinnu­lífs­ins, boð­aði í lok mars „sam­tal um þjóð­ar­sátt“.

„Á ein­hverjum tíma­punkti þarf bara að hamra á brems­una, sko, …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

3
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár