Aftur sveiflast verðbólgan upp í 5,2 prósent

Verð­bólga hefur mælst í kringum 5,2 pró­sent allt þetta ár. Hún hækkar lít­il­lega á milli mán­aða. Sam­an­lagt skýra flug­far­gjöld, gist­ing og reiknuð húsa­leiga stóran hluta hækk­un­ar­innar milli mán­aða.

Aftur sveiflast verðbólgan upp í 5,2 prósent
Á flug Verð­bólgan hefur haldið flugi sínu í rúmum fimm pró­sentum og nú er það ekki síst flug­verð sem heldur henni á lofti. Mynd: Golli

Vísitala neyslu­verðs hækk­aði um 0,94 pró­sent milli mán­aða í júní og mælist tólf mán­aða verð­bólga nú 5,2 pró­sent, sam­kvæmt nýjum tölum Hag­stof­unnar. Verð­bólgan hefur þar með marað í kringum 5,2 pró­sent það sem af er ári og lætur lítið undan síga.

Vísitala neyslu­verðs, miðuð við verð­lag í júní 2026, er nú 690,7 stig og hækkar úr 684,3 stigum í maí. Vísitala neyslu­verðs án hús­næðis hækk­aði enn meira milli mán­aða, eða um 1,08 pró­sent, og mælist tólf mán­aða hækkun hennar 4,8 pró­sent.

Mest áhrif til hækk­unar í júní höfðu flug­far­gjöld til útlanda, sem hækk­uðu um 20,1 pró­sent milli mán­aða og höfðu 0,52 pró­sentu­stiga áhrif á vísi­töl­una. Gisti­þjón­usta hækk­aði einnig veru­lega, eða um 17,5 pró­sent, sem hafði 0,11 pró­sentu­stiga áhrif. Þá hækk­aði kostn­aður vegna búsetu í eigin hús­næði, svokölluð reiknuð húsa­leiga, um 0,6 pró­sent og hafði 0,13 pró­sentu­stiga áhrif til hækk­unar.

Sam­an­lagt skýra flug­far­gjöld, gist­ing og reiknuð húsa­leiga stóran hluta hækk­un­ar­innar milli mán­aða. Hækkunin í júní kemur í kjöl­far þess að vísi­talan stóð nærri í stað í maí, þegar hún hækk­aði aðeins um 0,07 pró­sent milli mán­aða.

Síðustu tólf mán­uði hefur vísi­tala neyslu­verðs hækkað um 5,2 pró­sent. Verð­bólga án hús­næðis mælist 4,8 pró­sent.

Vísitala neyslu­verðs í júní, 690,7 stig, gildir til verð­trygg­ingar í ágúst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár