Vélfag tapar á æðsta dómstigi: Ekki ráðherra að aflétta frystingu fjármuna

Vélfag tap­aði dóms­máli gegn utan­rík­is­ráð­herra, en félagið er sagt vera í raun í eigu rúss­nesks útgerð­ar­manns sem hefur tengsl við for­seta Rúss­lands.

Vélfag tapar á æðsta dómstigi: Ekki ráðherra að aflétta frystingu fjármuna
Hæsti­réttur Íslands Dómur féll í Hæsta­rétti Íslands. Mynd: Golli

Hæsti­réttur úrskurð­aði í tveimur málum tengdum Vélfagi í vik­unni. Annað málið snéri að heim­ild Nicolai Kauf­manns, meiri­hluta­eig­anda Vélfags, til að taka sæti í stjórn félags­ins, sem var vísað frá að end­ingu, og hins vegar hvort utan­rík­is­ráð­herra hafi verið heim­ilt að hafna aflétt­ingu á fryst­ingu fjár­muna Vélfags sem voru í vörslu hjá Arion banka. Þar tap­aði félagið gegn íslenska rík­inu og þarf að greiða eina og hálfa milljón í máls­kostnað.

Flókin viðskiptaflétta meints lepps

Málið er ansi flókið og teygir anga sína til við­skipta­þving­ana ESB gegn Rúss­landi eftir að ríkið réðst inn í Úkraínu. Í grunn­inn leikur grunur á að rúss­neski útgerð­ar­mað­ur­inn Vitaly Orlov eigi í raun fyr­ir­tækið í gegnum lepp, sem er fyrr­greindur Nicolai Kaufmann.

Í árs­lok 2021 keypti félagið Norebo Overseas Holding Limited 54,5% hluta­fjár stofn­enda fyr­ir­tæk­is­ins. Það félag mun hafa verið dótt­ur­fé­lag rúss­neska félags­ins JSC Norebo Holding, eins stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækis Rúss­lands. Síð­ar­nefnda félagið var í …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristina Sigurdsson skrifaði
    Samsaeri radherra, banka og domsvalds, eins og alltaf.
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár