Lýstu áhyggjum af herskyldu, forræði og auðlindum Íslendinga

Á Al­þingi var hart tek­ist á um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um að­ild­ar­við­ræð­ur að Evr­ópu­sam­band­inu. Þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unn­ar lýstu ótta við að missa for­ræði yf­ir Ís­landi, teikn­uðu upp mynd af ytri ógn og ásælni annarra þjóða í auð­lind­irn­ar. Spurt var hvort Ís­lend­ing­ar myndu beygja sig und­ir her­skyldu, jafn­vel þótt evr­ópsk­ur her sé ekki til og Evr­ópu­sam­band­ið sé ekki hern­að­ar­banda­lag.

Lýstu áhyggjum af herskyldu, forræði og auðlindum Íslendinga
Frá Alþingi Sigríður Andersen og fleiri héldu fjölmargar ræður þar sem tekist var á um hvort það ætti að leyfa þjóðinni að greiða atkvæði um að taka upp samningaviðræður við ESB. Mynd: Golli

Hálfsannleikur og villandi framsetning birtist í málflutningi stjórnarandstöðunnar á Alþingi í aðdraganda þess að atkvæði voru greidd á þingi um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að ganga til aðildarviðræðna við ESB. Samþykkt var að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu nú í ágúst. 

Í greiningum Heimildarinnar á ræðum þingmanna kemur í ljós að algengast var að þingmenn stjórnarandstöðunnar héldu því fram að engin þjóð hafi fengið varanlegar undanþágur við inngöngu í ESB, sem er ýmist rangt eða hálfsannleikur. 

Sumir þingmenn settu fyrirvara við fullyrðinguna, en allur gangur var á því. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Jón Pétur Zimsen, hélt því fram í ræðustól Alþingis að ESB væri skuldugt og vildi „hlutdeild“ í auðlindum Íslendinga. „Það er ekki tilviljun að skuldug Evrópa vilji fá okkur í sinn faðm. Það er ekki tilviljun,“ sagði hann og lét að því liggja að annað og meira byggi hér undir.

Einfölduðu myndina 

Algengt var að þingmenn héldu því fram að …

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Held að Miðflokks- og Sjálfstæðismenn hafi engar áhyggjur af herskyldu og eignarhaldi á auðlindum, enda slíkt bara hræðsluáróður. Áhyggjurnar eru þær, að þjóðin vilji láta semja, og það sem verra er, að niðurstaðan geti orðið samningur, sem meiri hluti þjóðarinnar vilji ganga að..
    8
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    Þegar rökin um auðlindir, auðlindarentu og kvótakerfi verða of flókin má hræða fólk með evrópskum her sem EKKI er til. En við skulum heldur gleyma því að það var íslenska þjóðin sem vann þorskastríðið og svo voru það sægreifar sem unnu stríðið um auðlindarentuna með dyggri aðstoð Alþingis íslendinga.
    9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Aðild Íslands að ESB

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár