Ævilengd fólks með grunnskólamenntun hefur styst síðustu ár

Grunn­skóla­mennt­að­ur karl get­ur átt von á að lifa 8 ár­um skem­ur en há­skóla­mennt­uð kona.

Ævilengd fólks með grunnskólamenntun hefur styst síðustu ár
Fólk á gangi Konur geta almnent vænst þess að lifa 3,2 árum lengur en karlmenn á Íslandi. Mynd: Golli

Ævilengd íslenskra karlmanna með grunnskólamenntun hefur styst um hálft ár síðasta áratug, á meðan konur með háskólamenntun lifa ári lengur en þá.

Nýjar tölur Hagstofunnar sýna að karlmenn með grunnskólamenntun geta frá 30 ára aldri vænst þess að lifa 8 árum skemur en háskólamenntaðar konur.

Bæði konur og karlar með háskólamenntun skera sig úr mannfjöldanum að því leyti að frá árinu 2011 hefur vænt ævilengd þeirra ekki lengst. Á meðan háskólamenntað fólk af karl- og kvenkyni getur vænst þess að lifa um einu og hálfu ári lengur árið 2025 en 2011, eiga grunnskólamenntaðar konur von á að lifa hálfu áru skemur. 

Í færslu Hagstofu Íslands kemur fram að meðalævilengd karla á Íslandi var 81,0 ár árið 2025 og meðalævilengd kvenna 84,2 ár en meðalævilengd sýnir hve mörg ár einstaklingur á að meðaltali ólifuð við fæðingu ef miðað er við aldursbundna dánartíðni mannfjöldans.

Ævilengdarmunur kynjanna hefur minnkað síðustu áratugi. Frá árinu 1990 hafa karlar bætt við sig rúmlega fimm árum og konur tæplega fjórum í meðalævilengd. Ævilengd karla jókst um 0,1 ár frá árinu 2024 á meðan hún minnkaði hjá konum um 0,1 á milli áranna 2024 og 2025.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Ég veit ekki hvort það verður endilega eftirsóknarvert að verða gamall eins og heimurinn er að þróast?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Ég elska þig á íslensku“ – endurreisnarmaður íslenskunnar
1
Menning

„Ég elska þig á ís­lensku“ – end­ur­reisn­ar­mað­ur ís­lensk­unn­ar

„Fá­ir ef nokkr­ir lista­menn hafi haft jafn mik­il áhrif á ís­lenska tungu í sam­tím­an­um og Bubbi Mort­hens,” seg­ir lærð­ur við­mæl­andi í grein þess­ari af til­efni sjö­tugsaf­mæl­is hans. Ann­ar seg­ir hann vera mik­il­væg­an end­ur­reisn­ar­mann ís­lensk­unn­ar. Þenn­an lista­mann þjóð­arsál­ar­inn­ar sem ýms­ir smætt­uðu þó í upp­hafi sök­um meintr­ar skrif­blindu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
2
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.
Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
3
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
2
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.
Sagt upp í Ráðhúsinu þar sem hún lá á bráðamóttöku
6
Innlent

Sagt upp í Ráð­hús­inu þar sem hún lá á bráða­mót­töku

Þeg­ar Hólm­fríð­ur Helga Sig­urð­ar­dótt­ir lagði hjólandi af stað í vinn­una í síð­ustu viku grun­aði hana ekki hvað var í vænd­um. Hún varð fyr­ir bíl og þar sem hún lá slös­uð á bráða­mót­töku var henni sagt upp störf­um sem upp­lýs­inga­full­trúi í Ráð­hús­inu. Hún seg­ir frá því þeg­ar hún fékk „ tvö rot­högg á ein­um ör­laga­rík­um degi“.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár