Segir eitraða karlmennsku Trumps, Pútíns og Netanjahús skapa stríð

Javier Bardem vakti athygli með ræðu sinni á blaða­manna­fundi í Cannes í dag.

Segir eitraða karlmennsku Trumps, Pútíns og Netanjahús skapa stríð
Gagn­rýndi þjóð­ar­morð Spænski leik­ar­inn Javier Bardem á blaða­manna­fundi fyrir kvik­mynd­ina „El ser querido“ (The Beloved) á 79. kvik­mynda­há­tíð­inni í Cannes í Suður-Frakk­landi í dag. Mynd: AFP

Spænski leik­ar­inn Javier Bardem, sem fær frá­bæra dóma fyrir nýjasta kvik­mynda­hlut­verk sitt, gagn­rýndi í dag „eitr­aða karl­mennsku“ Donalds Trump, Vla­dimirs Pútíns og Benja­mins Net­anya­hus, sem hann sagði bera ábyrgð á stríðs­rekstr­inum í heim­inum.

Bardem leikur yfir­gangs­saman kvik­mynda­leik­stjóra með skapofsa í mynd­inni „The Beloved“, eða „El Ser Querido“, eftir Rodrigo Sorogoyen, sem var frum­sýnd á kvik­mynda­há­tíð­inni í Cannes í gær og hlaut mikið lof gagn­rýnenda.

Á blaða­manna­fundi í dag sagði Bardem í blóts­yrða­flaumi að gallar per­sónu hans stöf­uðu af „eitr­aðri karl­mennsku“ sem leiddi til þess að menn dræpu fyrr­ver­andi eig­in­konur sínar og kærustur – og hæfu stríð.

„Þetta vanda­mál á líka við um herra Trump, herra Pútín og herra Net­anyahu,“ sagði Bardem, 57 ára, og vís­aði til leið­toga Banda­ríkj­anna, Rúss­lands og Ísraels.

„Stóri kall­inn segir: ‚Tippið á mér er stærra en þitt og ég ætla að sprengja allt í tætlur hjá þér‘,“ bætti hann við og sagði að þetta væri „að valda dauða þús­unda manna“.

Bardem hefur verið einn af þeim kvik­mynda­leik­urum sem hafa tjáð sig hvað harð­ast gegn stríði Ísraels á Gaza frá árinu 2023, sem hófst eftir mann­skæða árás Hamas í Ísrael það ár. Herferð Ísra­els­manna hefur lagt palest­ínska land­svæðið í rúst og kostað meira en 72.000 manns lífið, þar af meira en helm­ingur konur og börn, sam­kvæmt heil­brigð­is­ráðu­neyti Hamas.

„Þjóð­ar­morð“ er „enn í gangi“, sagði Bardem.

„Það er stað­reynd. Þú getur reynt að rétt­læta það, útskýra það, en það er stað­reynd. Ef þú rétt­lætir það með þögn þinni eða stuðn­ingi, þá ertu fylgj­andi þjóð­ar­morði.“

Ísrael neitar þjóð­ar­morði. Árás þeirra og inn­rás á Gaza kom í kjöl­far verstu árásar sem Hamas hefur gert á landið, þar sem 1.221 maður lét lífið, sam­kvæmt sam­an­tekt AFP sem byggir á ísra­elskum tölum.

Í sam­tali við AFP í gær sagði Bardem að hann fengi „meiri vinnu en nokkru sinni fyrr“ þrátt fyrir opin­bera bar­áttu sína gegn stríði Ísraels á Gaza, sem hann taldi stafa af því að „frá­sögnin væri að breyt­ast“ í kringum átökin.

Aðrir aðilar úr kvik­mynda­brans­anum, þar á meðal hin virta leik­kona Susan Sarandon, hafa áður kvartað yfir því að verk­efnum hafi fækkað eftir opin­berar yfir­lýs­ingar þeirra og ákvörðun um að skrifa undir und­ir­skrifta­lista þar sem aðgerðir Ísraels á Gasa­svæð­inu og hernumda Vest­ur­bakk­anum eru for­dæmdar.

Kjósa
61
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Þessi hugmynd um að sérhver þjóð þurfi að hafa einn þjóðarleiðtoga sem ræður öllu er stórfurðuleg.
    0
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Þessi skýring hjá G.B. er góðragjalda ver, en það sem er kannski óhugnalegast við atferli þessara andlega brengluðu manna er stuðningurinn sem þeir hafa frá svokölluðum menningarríkjum þessa heims, eru þetta ekki öxulríki hins ylla ?
    3
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Tilgáta um brjálsemi þjóðarleiðtoga

    Þjóðarleiðtogar eru oft miklir egóistar og eru í stöðugri keppni um að vera fremstir. það er þessi keppni um að vera fremstir sem veldur brjálsemi þeirra - það kemst ekkert annað að. Sumir þeirra vita ekki afhverju þeir vilja vera þjóðarleiðtogar, þeir vita það eitt að þeir vilja vera fremstir.

    Þjóðarleiðtogar eiga það til að fangelsa eða ryðja úr vegi stjórnarandstæðingum og þeim sem gætu átt til að gagnrýna þá, dómurum og blaðamönnum og stundum fara þeir í stríð. Ástæðan fyrir þessu gæti verið að þeir eru að verja þá hugmynd um sjálfa sig, um að vera fremstir og til að þessi sjálfsmynd bíði ekki hnekki, gera þeir hvað sem er. Þeir eru í raun hræddir menn að verja hugmyndina um sjálfa sig sem mikilmenni og númer eitt og ryðja þeim úr vegi sem gætu raskað þeirri hugmynd.

    Rótin að þessu ástandi gæti verið lífsskoðun eins og sú, að láta engan vaða yfir sig. Í slíku lífsviðhorfi felst átök, jafnvel átakasækni (til að sanna sig) og ákveðin mikilmennskukennd, því ef enginn getur vaðið yfir viðkomandi þá hlýtur hann að vera númer eitt?

    Mótefnið við þessu kann að vera "jafnaðarmennska", tilfinningaleg meðvitund, kærleikur, átakafælni og muna að fæstir eru fullkomnir?
    13
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár