Fá atkvæði gætu ráðið meirihlutanum

Tvær kann­anir sem birtar voru dag­inn fyrir kjör­dag sýna að fá atkvæði í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum gætu haft áhrif á mögu­lega meiri­hluta. Þannig munar litlu á því hvort Sam­fylk­ingin fái sjötta borg­ar­full­trú­ann eða Mið­flokkur þann þriðja.

Fá atkvæði gætu ráðið meirihlutanum
Mjótt á munum Fá atkvæði gætu skorið úr um hvernig meiri­hluta hægt verður að mynda í borg­ar­stjórn eftir kosn­ingar dags­ins. Mynd: Golli

Nýjar kann­anir Maskínu og Gallup sýna hversu mjótt er á munun í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum. Þegar fylgis­tölur eru skoð­aðar með til­liti til þeirrar reikni­reglu sem notuð er við úthlutun sæta að loknum kosn­ingum kemur í ljós að örlitlar fylg­is­hreyf­ingar geta ráðið því hvaða flokkar ná inn síð­ustu mönn­unum og þar með hvaða meiri­hlutar verða mögu­legir.

Það þarf 12 full­trúa til að mynda meiri­hluta í borg­ar­stjórn. Það þýðir að eitt sæti til eða frá getur skipt sköpum í við­ræðum eftir kosn­ingar.

Meirihluti í Gallup en ekki Maskínu

Samkvæmt útreikn­ingi á könnun Maskínu, sem birt­ist í gær­kvöldi, fengi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn átta borg­ar­full­trúa, Sam­fylk­ingin fimm, Viðreisn þrjá, Vinstrið þrjá, Mið­flokk­ur­inn tvo, Framsókn einn og Sós­í­alista­flokk­ur­inn einn.

Í Gallup-könn­un­inni sem kynnt var við upp­haf odd­vitaum­ræðna á RÚV í gær er myndin nán­ast sú sama, nema að eitt sæti fær­ist frá Viðreisn til Mið­flokks­ins. Viðreisn færi úr þremur full­trúum í tvo, en Mið­flokk­ur­inn úr tveimur í þrjá.

Sú breyt­ing getur haft veru­leg póli­tísk áhrif. Í Maskínu myndu Sjálf­stæð­is­flokkur, Viðreisn og Framsókn sam­an­lagt fá 12 full­trúa og þar með nauman meiri­hluta. Í Gallup-könn­un­inni fengju sömu flokkar hins vegar aðeins 11 full­trúa.

En myndin er enn flókn­ari.

Færi frá hægri til vinstri

Skýrasta dæmið um hversu mjótt er á munum birt­ist í Gallup-könn­un­inni. Þar er þriðji maður Mið­flokks­ins síð­asti maður inn í borg­ar­stjórn sam­kvæmt d’Hondt-úthlut­un­inni. Sam­fylk­ing­una vantar þó aðeins um 0,3 pró­sentu­stig til að sjötti maður hennar fari fram úr þriðja manni Mið­flokks­ins, miðað við óbreytt fylgi Mið­flokks­ins. Að sama skapi gæti mjög lítil lækkun hjá Mið­flokknum orðið til þess að flokk­ur­inn missti þriðja mann­inn til Sam­fylk­ing­ar­innar.

Þetta sýnir hversu lítil hreyf­ing getur breytt mynd­inni. Ef Sam­fylk­ingin næði sjötta mann­inum í Gallup-útreikn­ingnum færi hún úr fimm full­trúum í sex, en Mið­flokk­ur­inn úr þremur í tvo. Slík til­færsla gæti breytt stöðu beggja flokka í meiri­hluta­við­ræðum. 

Vinstri ásinnSam­fylk­ing Péturs og Vinstri Sönnu virð­ast eiga allt undir Viðreisn Bjargar.

Í Maskínu-könn­un­inni er síð­asta sætið ekki jafn tæpt. Þar er þriðji maður Vinstr­is­ins síð­asti maður inn en næstur á eftir er níundi maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þar munar meira en í Gallup, en engu að síður er staðan kvik.

Smærri flokk­arnir eru líka hluti af þess­ari mynd. Framsókn og Sós­í­alista­flokk­ur­inn halda hvor um sig einum full­trúa í báðum könn­unum. Flokkur fólks­ins, Píratar, Góðan dag­inn og Okkar borg ná ekki inn sam­kvæmt þessum útreikn­ingum. Ef ein­hver þeirra næði inn einum full­trúa yrði sá full­trúi tek­inn af öðrum flokki. Kann­an­irnar benda þó til að það sé ólík­legt en þó ekki úti­lokað.

Sæta­fjöld­inn segir þó ekki alla sög­una. Meiri­hlut­inn þarf líka að ganga upp póli­tískt. Þar hafa odd­vitar þegar þrengt svig­rúmið.

„Pólitískur ómöguleiki“

Framsókn hefur úti­lokað sam­starf við Sam­fylk­ing­una og lagt áherslu á meiri­hluta frá miðju til hægri. Viðreisn hefur á sama tíma úti­lokað meiri­hluta­sam­starf við Mið­flokk­inn en Björg Magn­ús­dóttir, odd­viti Við­reisnar, lýsti því sem „póli­tískum ómögu­leika“ að fara í sam­starf með Mið­flokki.

Þess vegna skiptir eitt sæti til eða frá jafn­vel enn meira máli. Ef Viðreisn og Mið­flokkur geta ekki náð saman og Framsókn vill ekki mynda meiri­hluta með Sam­fylk­ingu og helst ekki Mið­flokknum, eins og Einar Þor­steins­son, odd­viti flokks­ins, sagði í kapp­ræðum á RÚV í gær, fækkar þeim leiðum sem hægt er telja upp í tólf full­trúa meiri­hluta. 

Eina leið Mið­flokks­ins að völdum virð­ist vera með Sjálf­stæð­is­flokki og Framsókn, en af orðum Einars að dæma myndi önnur mynstur fyrst koma til greina.

Fái Viðreisn þrjá full­trúa gæti það fært tölu­verð völd í þeirra hendur um hvernig meiri­hluti verði mynd­aður. Fyrsta sím­tal Bjargar, að hennar eigin sögn, er til Hildar Björns­dóttur, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hildur hefur sjálf lýst því yfir að henni hugn­ist síst sam­starf með Sam­fylk­ingu en Framsókn komi vel til álita. 

Björg hefur hins vegar ekki úti­lokað sam­starf með Sam­fylk­ingu, þó það sé ekki fyrsta val, og gæti flokk­ur­inn mynd­aði meiri­hluta til vinstri með Pétri Mart­eins­syni, odd­vita Sam­fylk­ingar, með stuðn­ingi þriggja full­trúa Vinstr­is­ins, fái hún ekki sínu fram í við­ræðum við Hildi. 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár