Sýnir sjálfan sig kýla Pétur

Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, odd­viti Flokks fólks­ins, birtir mynd­band af sjálfum sér kýla odd­vita Sam­fylk­ing­ar­innar og sakar hana um lof­orða­svik, en sjálfur hafði hann reynt að ná sæti hjá flokknum.

Sýnir sjálfan sig kýla Pétur
Úr mynd­bandi Guð­mundar Inga Fram­bjóð­and­inn lætur höggin dynja á sig­ur­veg­ara próf­kjörs Sam­fylk­ing­ar­innar, sem honum var hafnað í. Mynd: Skjáskot / Tiktok/ Guðmundur Ingi Þóroddsson

Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, sem leiðir lista Flokks fólks­ins í Reykja­vík eftir að hafa verið hafnað í próf­kjöri Sam­fylk­ing­ar­innar sem Pétur Mart­eins­son vann, hefur gefið út gervi­greind­ar­mynd­band þar sem hann lemur á Pétri og sakar Sam­fylk­ing­una um lof­orða­svik.

„Samfó seg­ist hafa plan,“ segir í lag­inu. 

Í mynd­band­inu er leikið lag með hjálp gervi­greindar, þar sem sungið er um „enda­laus lof­orð, engu breytt.“

„Ráðhúsið í „slow motion“, sama vælið, „same old show“

Þá beinir Guð­mundur Ingi, sem er fyrr­ver­andi fangi og for­maður hags­muna­fé­lags fanga, spjótum sínum að Ara Edwald, odd­vita Mið­flokks­ins. „Uppreist æra fyrir Ara.“

Í lag­inu er á móti farið mjúkum höndum um Guðmund Inga sjálfan.

„Hugsar um meira en sjálfan sig. Hann er glæsi­legur, glimmr­andi.“

Þá segir að Flokkur fólks­ins sé „fokk­ing sexý“.

Einn þeirra sem gagn­rýnt hafa mynd­bandið eru Björn Leví Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi þing­maður Pírata, sem spyr á Facebook: „Hvað í fjand­anum er að ger­ast í þess­ari póli­tík nú orðið?“ 

Þá segir Björn að ofbeld­is­hluti mynd­bands­ins, sem virð­ist vera til­vísun í mynd­band Mið­flokks­ins í Mos­fellsbæ, þar sem fram­bjóð­andi „kýlir libba“, eða frjáls­lynda mann­eskju, sé „klárt rautt spjald“. „Út af með mann­inn,“ segir Björn.

„Það voru bara aðilar úti í bæ sem sendu þetta á mig og ég birti á minni per­sónu­legu TikTok-síðu,“ útskýrir Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, odd­viti Flokks fólks­ins, þegar hann er spurður út í mynd­band þar sem hann sést meðal ann­ars ráð­ast á Pétur Mart­eins­son, odd­vita Sam­fylk­ing­ar­innar. 

„Ég er búinn að fjar­lægja mynd­bandið,“ segir Guð­mundur Ingi sem áréttar að það hafi ekki verið fram­leitt af fram­boði Flokks fólks­ins. Spurður um álit sitt á mynd­band­inu segir hann mark­miðið hafa aug­ljós­lega að gera eitt­hvað fyndið og skemmti­legt. „Uppi­staðan þarna er dans og söngur,“ segir Guð­mundur Ingi.

Uppfært með við­brögðum Guð­mundar Inga.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Er einhver hissa á því að fólk beri ekki virðingu og traust til stjórnmálanna. Það er algerlega stjórnmálamönnum sjálfum um að kenna. I guðanna bænum ekki taka vitleysinginn í Vestri til fyrirmyndar, því það er kapphlaup á botninn.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sveitarstjórnarkosningar 2026

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár