„Við lifum við mannaveiðar“

„Aldrei áður hefur jafn margt fólk elt annað fólk. Við lifum við mana­veiðar. Innflytj­endur eru eltir,“ segir brasilíski rithöf­und­urinn Ana Paula Maia, sem tilnefnd er til Booker-verðlauna.

„Sterk og óhugnaleg,“ eru orðin sem dómarar alþjóð­legu Booker-verð­launanna nota til að lýsa skáldsögu sem gæti gert brasilíska rithöfundinn Ana Paula Maia að fyrsta rithöfundi frá Rómönsku Ameríku til að hljóta þessi virtu verðlaun.

Verð­launin, sem verða afhent við athöfn í London 19. maí, eru veitt fyrir skáldverk frá öllum heims­hornum sem hafa verið þýdd á ensku.

„On Earth As It Is Beneath“ – eða á portúgölsku „Assim na terra como embaixo da terra“, sem kom út í Brasilíu árið 2017 – er óhugnaleg saga um grimma fanga­nýlendu í afskekktri óbyggð.

Hryllingurinn er afhjúpaður á aðeins 100 blaðsíðum, en höfundurinn segir að sagan, sem er full af blóði, iðrum og örvæntingu, sé ekki fjarri þeim heimi sem við búum í í dag.

„Aldrei áður hefur jafn margt fólk elt annað fólk,“ sagði þessi 48 ára gamla brasilíska kona við AFP í mynd­símtali frá heimili sínu …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PH
    Pétur Hilmarsson skrifaði
    þetta er nú etv hæpin fullyrðing að aldrei hafi fleiri stundað "mannaveiðar". Öldum saman hefur fjöldi manna í öllum heimsálfum unnið við mannaveiðar og þrátt fyrir hrylling nútímans þá var þetta miklu miklu verra á fyrri tímum.
    0
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það ljótasta við mannaveiðarnar er að samfélag okkar samþykkir það.
    0
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Því miður er þetta alveg rétt hjá henni. Mannaveiðar eru stór atvinnugrein og ógeðsleg og er því miður líka hér á landi. Þessi eitraða einstaklingshyggja sem er alls ráðandi í dag gerir sitt besta til að ganga frá öllu dauðu sem er gott og fallegt.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár