Guðmundur Ingi Kristinsson hefur sagt sig úr Flokki fólksins en hyggst sitja áfram á Alþingi sem óháður þingmaður. Þetta kom fram í yfirlýsingu sem lesin var upp við upphaf þingfundar í dag.
Í yfirlýsingunni segir Guðmundur Ingi að þrátt fyrir úrsögnina muni hann áfram styðja ríkisstjórnina.
Formaður Flokks fólksins, Inga Sæland, segir í yfirlýsingu að brotthvarf hans veki mikla eftirsjá. Þar kemur fram að Guðmundur Ingi hafi fylgt flokknum frá upphafi og verið óþreytandi baráttumaður fyrir helstu málefnum hans, meðal annars bættum kjörum eldri borgara og öryrkja.
Hún segir jafnframt að það sé sárt að hann kjósi að starfa utan þingflokksins nú þegar flokkurinn sé kominn í ríkisstjórn og hafi þar með aukin áhrif til að fylgja stefnumálum sínum eftir.
„Það er hins vegar með stjórnmálin eins og annað í lífinu, hver og einn verður að ráða sínum næturstað,“ segir í yfirlýsingu Ingu, þar sem hún þakkar honum fyrir gott samstarf og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.
Í yfirlýsingu sem hann sendi á fjölmiðla kom fram að ástæðan fyrir úrsögninni væri trúnaðarbrestur sem varðar persónuleg samskipti innan flokksins. Hann hyggst ekki tjá sig frekar um málið að sinni.
Fréttin hefur verið uppfærð.















































Athugasemdir