Guðmundur Ingi hættir í Flokki fólksins

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, fyrr­ver­andi ráð­herra, er geng­inn úr Flokki fólks­ins. Hann situr áfram á þingi og seg­ist styðja rík­is­stjórn­ina.

Guðmundur Ingi hættir í Flokki fólksins

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son hefur sagt sig úr Flokki fólks­ins en hyggst sitja áfram á Alþingi sem óháður þing­maður. Þetta kom fram í yfir­lýs­ingu sem lesin var upp við upp­haf þing­fundar í dag. 

Í yfir­lýs­ing­unni segir Guð­mundur Ingi að þrátt fyrir úrsögn­ina muni hann áfram styðja rík­is­stjórn­ina.

Formaður Flokks fólks­ins, Inga Sæland, segir í yfir­lýs­ingu að brott­hvarf hans veki mikla eft­ir­sjá. Þar kemur fram að Guð­mundur Ingi hafi fylgt flokknum frá upp­hafi og verið óþreyt­andi bar­áttu­maður fyrir helstu mál­efnum hans, meðal ann­ars bættum kjörum eldri borg­ara og öryrkja.

Hún segir jafn­framt að það sé sárt að hann kjósi að starfa utan þing­flokks­ins nú þegar flokk­ur­inn sé kom­inn í rík­is­stjórn og hafi þar með aukin áhrif til að fylgja stefnu­málum sínum eftir.

„Það er hins vegar með stjórn­málin eins og annað í líf­inu, hver og einn verður að ráða sínum næt­ur­stað,“ segir í yfir­lýs­ingu Ingu, þar sem hún þakkar honum fyrir gott sam­starf og óskar honum vel­farn­aðar í fram­tíð­inni.

Í yfir­lýs­ingu sem hann sendi á fjöl­miðla kom fram að ástæðan fyrir úrsögn­inni væri trún­að­ar­brestur sem varðar per­sónu­leg sam­skipti innan flokks­ins. Hann hyggst ekki tjá sig frekar um málið að sinni.

Fréttin hefur verið upp­færð.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár