Hluthafar Brims, stærsta einstaka útgerðarfélags landsins, geta fengið arðgreiðslur sínar í evrum. Fyrirtækið hefur gert upp í evrum um árabil.
Fiskifréttir greindu fyrst frá þessu en þetta var tilkynnt í niðurstöðum aðalfundar Brims 19. mars síðastliðinn. Sagði stjórnarformaður Brims, Kristján Þ. Davíðsson, við blaðið að þetta væri til þægindaauka fyrir báða aðila enda þyrfti félagið þá ekki að breyta evrum í krónum til að borga hluthöfum út arð í krónum sem þeir ætli síðan að skipta aftur yfir í evrur. Mun hluthöfum hafa staðið þetta til boða síðan 2021.
„Hluthöfum mun standa til boða að fá arðgreiðslu í evrum, sem mun byggja á ISK/EUR miðgengi Seðlabanka Íslands eins og það er tilgreint við lok dags, síðasta dag fyrir arðgreiðslu, eða 29. apríl 2026,“ segir í niðurstöðunum. „Hluthafar sem hyggjast óska eftir arðgreiðslu í evrum skulu tilkynna félaginu það fyrir lok dags 15. apríl 2026 á þar til gert eyðublað.“
Brim …
















































Athugasemdir