Páfinn gagnrýnir ofbeldisbænir eftir að Hegseth bað til Guðs um „yfirþyrmandi ofbeldi“

Ír­ans­stríð­ið fær á sig sí­fellt trú­ar­legri blæ. Stríðs­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna bið­ur fyr­ir „yf­ir­þyrm­andi of­beldi“ gegn óvin­um Banda­ríkj­anna. Fyrsti banda­ríski páfinn sendi frá sér ákúr­ur frammi fyr­ir tug­þú­s­end­um áheyr­enda á Pét­urs­torg­inu.

Páfinn gagnrýnir ofbeldisbænir eftir að Hegseth bað til Guðs um „yfirþyrmandi ofbeldi“
Leó páfi Fyrsti bandaríski páfinn hefur leynt og ljóst gagnrýnt Bandaríkjastjórn, stefnu hennar og verknaði. Mynd: Shutterstock

Leó páfi XIV varaði við því í dag að Guð „hlusti ekki á bænir þeirra sem heyja stríð“, eftir að stríð Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran hefur tekið á sér sífellt trúarlegri blæ. Á sama tíma virðast Bandaríkin undirbúa mögulegan landhernað í Íran, samkvæmt frétt Washington Post, og fulltrúar klerkastjórnarinnar segjast bíða eftir þeim, til að geta „kveikt í þeim“.

„Þetta er Guð okkar ... Guð sem hafnar stríði ... sem hlustar ekki á bænir þeirra sem heyja stríð, heldur hafnar þeim,“ sagði hann í prédikun sinni nú á pálmasunnudag.

Boðskapur Jesú gegn stríði

Í predikuninni sagði páfinn að átökin milli Írans, Ísraels og Bandaríkjanna væru „hryllileg“ og að ekki væri hægt að nota Jesú til að réttlæta stríð.

„Þetta er Guð okkar: Jesús, konungur friðarins, sem hafnar stríði, sem enginn getur notað til að réttlæta stríð,“ sagði hann við tugþúsundir áheyrenda á Péturstorginu í Róm.

Leó páfi vitnaði síðan í Gamla testament Biblíunnar, Jesaja-bók: „Þótt þér biðjið mörgum bænum, þá heyri ég ekki. Hendur yðar eru alblóðugar.“

Eftir Angelus-bænina vottaði hann „kristnum mönnum í Miðausturlöndum virðingu sína, en þeir þjást af afleiðingum hræðilegra átaka og geta í mörgum tilfellum ekki lifað helgihald þessara heilögu daga til fulls“.

Fyrr í vikunni kallaði páfinn eftir vopnahléi í stríðinu í Miðausturlöndum og sagði að meira en milljón manns hefðu neyðst til að flýja heimili sín og hvatti stríðandi fylkingar til að hefja viðræður.

Leó XIV, fyrsti bandaríski páfinn, hefur ítrekað fordæmt stríðið og kallað eftir viðræðum.

Páfinn sjötugi hefur verið varkár í yfirlýsingum sínum frá því að árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran hófu stríðið 28. febrúar og hefur forðast að nafngreina nokkurn aðila í fordæmingum sínum og friðarköllum.

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, vakti á móti mikla athygli fyrir tilvitnun sína á fundi með erlendum blaðamönnum á dögunum um að Jesús Kristur hefði ekki haft neitt forskot á Gengis Khan, sem var einn frægasti fjöldamorðingi sögunnar þegar hann áorkaði hraðri útþenslu mongólska keisaradæmisins á 13. öld.

Hegseth biður fyrir ofbeldi

Ríkisstjórn Donalds Trump hefur í vaxandi mæli tengt saman trúmál og hernað upp á síðkastið.

Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sem kallar sig stríðsmálaráðherra, heldur mánaðarlegar guðsþjónustur í ráðuneytinu, Pentagon. Á miðvikudag bað hann fyrir „yfirþyrmandi gjörðum ofbeldis“ gegn „þeim sem verðskulda enga miskunn“:

„Sjá nú hina vondu sem rísa gegn réttlæti þínu og friði hinna réttsýnu. Brjóttu staf kúgarans, gerðu að engu hin illu áform og brjóttu tennur hinna óguðlegu. Lát hið illa farast fyrir sprengingum reiði þinnar,“ las Hegseth í Pentagon. Hann eignaði ónefndum presti textann, sem hann sagði hafa flutt fyrir hermönnum fyrir árásina á Venesúela í ársbyrjun, þar sem forseti landsins var handsamaður.

Pete HegsethStríðsmálaráðherrann heldur mánaðarlegar guðsþjónustur.
„Gef þessari hersveit skýr og réttlát skotmörk fyrir ofbeldi.“
Pete Hegseth
Stríðsmálaráðherra Bandaríkjanna í bæn í Pentagon á miðvikudag.

Hegseth hélt áfram bæn sinni frammi fyrir einkennisklæddum hermönnum og almennu starfsfólki ráðuneytisins: „Gef þessari hersveit skýr og réttlát skotmörk fyrir ofbeldi. Umkringdu þau sem skjöldur, verndaðu hina saklausu og vammlausu í þeirra hópi, gerðu örvar þeirra eins og örvar þrautþjálfaðs stríðsmanns sem snýr ekki aftur tómhentur. Lát hverja kúlnahríð hitta í mark á óvinum réttvísinnar og okkar miklu þjóðar.“

Samtök um aðskilnað ríkis og kirkju í hófu á mánudag lögsókn gegn guðsþjónustum í Stríðsmálaráðuneytinu svokallaða. 

Leó páfi fékk heimboð frá Donald Trump Bandaríkjaforseta í fyrra, en engin áform um heimsókn hafa verið gefin út.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Veröld valdsins eftir fall hugsjónanna
Greining

Ver­öld valds­ins eft­ir fall hug­sjón­anna

Benja­mín Net­anja­hú seg­ir að Jesús Krist­ur hafi ekki haft neitt fram yf­ir Geng­is Kh­an. „Það er ekki nóg að gera sið­ferð­is­lega rétt,“ seg­ir hann og boð­ar stríð við „villi­menn“. Geir H. Haar­de, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Ís­lands, lýs­ir því að hug­sjón­irn­ar séu falln­ar og að Ís­lend­ing­ar þurfi að „liggja lágt“ gagn­vart Banda­ríkj­un­um vegna valds þeirra.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár