Færri nýjar íbúðir klárast og raunverð lækkar

Alls klár­uð­ust 264 íbúð­ir á land­inu öllu í janú­ar og fe­brú­ar, sam­an­bor­ið við 585 íbúð­ir á sama tíma­bili ár­ið 2025 og 573 ár­ið 2024.

Færri nýjar íbúðir klárast og raunverð lækkar
HMS telur vísbendingar um að byggingaraðilar fresti því að ljúka íbúðum. Töluverður fjöldi nýrra íbúða er enn óseldur á markaði. Mynd: Golli

Mun færri íbúðir voru fullbúnar á fyrstu tveimur mánuðum ársins en á sama tíma undanfarin ár, samkvæmt nýjum gögnum frá HMS. Alls kláruðust 264 íbúðir á landsvísu í janúar og febrúar, sem er veruleg fækkun frá fyrra ári.

Til samanburðar voru 585 íbúðir fullbúnar á sama tímabili árið 2025 og 573 árið 2024. Meðaltal áranna 2020 til 2025 er 517 íbúðir, sem undirstrikar að upphaf ársins nú er óvenju rólegt hvað nýbyggingar varðar. 

HMS bendir þó á að fækkunin endurspegli ekki endilega minni framkvæmdir einar og sér. Vísbendingar eru um að byggingaraðilar fresti því að ljúka íbúðum, meðal annars vegna þess að töluverður fjöldi nýrra íbúða er enn óseldur á markaði. Því geti þróunin bæði bent til hægari uppbyggingar og aukinnar varfærni í afhendingu nýrra íbúða.

Þessi þróun fellur að stöðu fasteignamarkaðarins um þessar mundir. Markaðurinn er rólegur og lítið hefur verið um verðþrýsting …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Funduðu með einni umdeildustu hugveitu heims
4
StjórnmálMAGA-tengingar Miðflokksins

Fund­uðu með einni um­deild­ustu hug­veitu heims

Þing­menn Mið­flokks­ins fund­uðu með Her­ita­ge Foundati­on, hug­veit­unni sem samdi hina um­deildu áætl­un Proj­ect 2025 um end­ur­skipu­lagn­ingu banda­ríska rík­is­ins. Sig­ríð­ur And­er­sen, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, seg­ir erfitt að fá áheyrn, því hafi flokk­ur­inn leit­að til ráð­gjafa Nig­el Fara­ge til þess að tengj­ast banda­rísk­um stjórn­mál­um.

Mest lesið í mánuðinum

Leynifundur Sigmundar Davíðs með Repúblikönum
5
RannsóknMAGA-tengingar Miðflokksins

Leynifund­ur Sig­mund­ar Dav­íðs með Re­públi­kön­um

Þrýsti­hóp­ur MAGA-hreyf­ing­ar­inn­ar borg­aði fyr­ir Norð­ur­landa­ferð hóps hátt­settra Re­públi­kana til að hitta Sig­mund Dav­íð Gunn­laugs­son og aðra áhrifa­menn af hægri væng stjórn­mál­anna. Með­al skipu­leggj­enda voru að­il­ar grun­að­ir um að reyna að stela for­seta­kosn­ing­un­um 2020 fyr­ir Don­ald Trump. Heim­ild­in rek­ur tengsl hug­veitna sem fjár­magn­að­ar eru af banda­rísk­um auð­mönn­um til Ís­lands.
„Ég var ofbeldisfullur“
6
ViðtalLandið sem enginn á

„Ég var of­beld­is­full­ur“

Þeg­ar Embla Kristjáns­dótt­ir hóf sam­búð með Niels Thomassen fékk hún að kynn­ast nýrri hlið á mann­in­um sem hún elsk­aði, þar sem stjórn­semi, af­brýði­semi og reiði réðu ríkj­um. Hann gekkst við of­beld­inu, axl­aði ábyrgð og hef­ur unn­ið þrot­laust í sjálf­um sér síð­asta ára­tug. Nú miðl­ar hann reynslu sinni og hvet­ur aðra karl­menn sem glíma við sama vanda að tjá til­finn­ing­ar sín­ar og standa ber­skjald­að­ir.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár