Mun færri íbúðir voru fullbúnar á fyrstu tveimur mánuðum ársins en á sama tíma undanfarin ár, samkvæmt nýjum gögnum frá HMS. Alls kláruðust 264 íbúðir á landsvísu í janúar og febrúar, sem er veruleg fækkun frá fyrra ári.
Til samanburðar voru 585 íbúðir fullbúnar á sama tímabili árið 2025 og 573 árið 2024. Meðaltal áranna 2020 til 2025 er 517 íbúðir, sem undirstrikar að upphaf ársins nú er óvenju rólegt hvað nýbyggingar varðar.
HMS bendir þó á að fækkunin endurspegli ekki endilega minni framkvæmdir einar og sér. Vísbendingar eru um að byggingaraðilar fresti því að ljúka íbúðum, meðal annars vegna þess að töluverður fjöldi nýrra íbúða er enn óseldur á markaði. Því geti þróunin bæði bent til hægari uppbyggingar og aukinnar varfærni í afhendingu nýrra íbúða.
Þessi þróun fellur að stöðu fasteignamarkaðarins um þessar mundir. Markaðurinn er rólegur og lítið hefur verið um verðþrýsting …














































Athugasemdir