Frömdu Bandaríkin stríðsglæpi í Íransstríðinu?

Banda­ríski her­inn virð­ist hafa drepið fjöld­ann allan af skóla­stúlkum. Stríðs­mála­ráð­herr­ann seg­ist ekki fylgja neinum „heimsku­legum reglum um hernað“.

Frömdu Bandaríkin stríðsglæpi í Íransstríðinu?
Útför Á þess­ari mynd frá írönsku frétta­stof­unni ISNA sjást syrgj­endur gráta við útför barna sem lét­ust í árás sem gerð var á grunn­skóla í Hormozgan-hér­aði í Íran, í Minab á þriðju­dag, 3. mars 2026. Mynd: AFP

Banda­ríkin eru lík­leg­ast ábyrg fyrir árás sem sögð er hafa orðið fjölda barna að bana í grunn­skóla í suð­ur­hluta Írans, sam­kvæmt rann­sókn New York Times. Sömu­leiðis gerðu Banda­ríkin enga til­raun til að bjarga írönskum sjóliðum eftir að hafa sökkt írönsku her­skipi, sem var á leið frá alþjóð­legum her­æf­ingum við Indland, sem er brot á Gen­far­sátt­mál­anum.

Árásin á grunn­skóla í íranska bænum Minab 28. febr­úar varð að minnsta kosti 150 manns að bana, að sögn íranskra emb­ætt­is­manna.

Hvorki Ísrael né Banda­ríkin hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni, sem var gerð í nálægð við svæði sem Íranski bylt­inga­vörð­ur­inn (IRGC) ræður yfir.

Stríðs­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna hefur sagt að það sé að rann­saka atvikið.

New York Times greindi frá því í gær­kvöldi að yfir­lýs­ingar frá banda­ríska hernum, sem gáfu til kynna að her­sveitir væru að ráð­ast á skot­mörk á sjó nálægt Hor­mússundi þar sem her­stöð IRGC er stað­sett, „bendi til þess að þær hafi lík­leg­ast staðið fyrir árásinni“.

Í umfjöll­un­inni kemur fram að grein­ing á færslum á sam­fé­lags­miðlum frá þeim tíma sem árásin var gerð, auk mynda og mynd­banda frá vitnum, benti til þess að ráð­ist hefði verið á Shajare Tayyebeh-grunn­skól­ann á sama tíma og á her­stöðvar flota­deildar bylt­ing­ar­varð­liðs­ins.

Minab, ÍranMyndir frá írönsku frétta­stof­unni ISNA af útför í borg­inni Minab í Íran, þar sem barna­skóli var sprengdur sam­hliða árásum Banda­ríkj­anna.
Lík­kistur barnaÁ þess­ari mynd frá írönsku frétta­stof­unni ISNA und­ir­búa syrgj­endur lík­kistur barna sem lét­ust í árás sem gerð var á grunn­skóla í Hormozgan-hér­aði í Íran fyrir útför í Minab þann 3. mars 2026.
Syrgj­endurMynd frá írönsku frétta­stof­unni ISNA frá Minab í Íran eftir útför barna úr skól­anum sem Banda­ríkin eru talin hafa sprengt.

Líklegt að Bandaríkin séu ábyrg

Tveir ónefndir banda­rískir emb­ætt­is­menn sögðu Reuters að rann­sak­endur hers­ins „telji lík­legt“ að banda­rískar her­sveitir hafi verið ábyrgar fyrir árásinni.

Dan Caine hers­höfð­ingi, æðsti yfir­maður banda­ríska hers­ins, sagði á mið­viku­dag að Banda­ríkin hefðu verið að gera árásir með­fram suð­ur­hluta Írans á þeim tíma.

Kort sem hann sýndi, að því er Times greindi frá, gaf til kynna að svæði, þar á meðal Minab, hefði verið skot­mark árása á fyrstu 100 klukku­stundum aðgerð­ar­innar.

Caine benti á að Ísrael hefði aðal­lega verið að störfum norðar í Íran.

Skólinn var á einum tíma­punkti hluti af flota­stöð IRGC, sam­kvæmt gervi­hnatta­myndum frá 2013 sem Times skoð­aði.

Hins vegar sagði blaðið að opin­ber­lega aðgengi­legar sögu­legar gervi­hnatta­myndir „sýni að bygg­ingin ber ein­kenni skóla, þar á meðal íþrótta­völl og önnur úti­vist­ar­svæði sem bætt­ust við með tím­anum“.

„Miðað við leyni­þjón­ustu­getu Banda­ríkj­anna hefðu þau átt að vita að skóli var í nágrenn­inu,“ sagði Beth Van Schaack, fyrr­ver­andi emb­ætt­is­maður utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins sem kennir við Center for Human Rights and International Justice við Stanford-háskóla, í sam­tali við Times.

Mann­rétt­inda­sam­tökin Hengaw, sem eru með aðsetur í Noregi, sögðu að kennsla hefði staðið yfir í skól­anum þegar árásin var gerð og að um 170 nem­endur hefðu verið við­staddir.

Þegar Karoline Leavitt, fjöl­miðla­full­trúi Hvíta húss­ins, var spurð á mið­viku­dag hvort Banda­ríkin hefðu átt aðild að árásinni, svar­aði hún: „Ekki svo við vitum.“

Segjast fylgja engum reglum

Myndband sem banda­ríska stríðs­mála­ráðu­neytið gaf út sýnir að þar­lendur kaf­bátur sökkti írönsku frei­gát­unni IRIS Dena undan Srí Lanka, sem kom af sam­eig­in­legum æfingum við Indland. Banda­ríski sjó­her­inn virð­ist ekki hafa gert neina til­raun til að bjarga írönsku sjólið­unum. Ekki er ljóst hvernig skipið var vopnað, þar sem það tók þátt í alþjóð­legu æfing­unni. Björg­un­ar­sveitir Srí Lanka end­ur­heimtu 87 lík og björg­uðu lífi 32 sjóliða, en um 60 er enn saknað.

Það er skylt sam­kvæmt Gen­far­sátt­mál­anum um stríðs­rekstur, sem kveður á um það í 18. grein að sjóliðum í sjáv­ar­háska skuli bjargað. „Að loknum hverjum bar­daga skulu stríðs­að­ilar án tafar gera allar mögu­legar ráð­staf­anir til að leita að og safna saman skip­brots­mönnum, særðum og sjúkum, vernda þá gegn ránum og illri með­ferð, tryggja þeim full­nægj­andi umönnun og leita að látnum og koma í veg fyrir að þeir spillist.“

Þvert á móti lýsti Pete Hegseth stríðs­mála­ráð­herra árásinni sem „hljóð­látum dauða“. „Þau héldu að þau væru örugg á alþjóð­legu haf­svæði. Í stað­inn var þeim sökkt af tund­ur­skeyti, hljóð­látur dauði,“ sagði hann.

Áður hafði Hegseth boðað að Banda­ríkin myndu ekki fylgja neinum reglum um hernað. „Engar heimsku­legar reglur um hernað“ sagði hann og bætti við: „Engin þjóð­ar­upp­bygg­ing, engar æfingar í lýð­ræð­i­svæð­ingu, engin póli­tískt rétt stríð.“

Spurður á blaða­manna­fundi hvort Banda­ríkin hefðu gert árás­ina á skól­ann sagði Hegseth: „Við erum að rann­saka það“.

Ólögleg árás

Samkvæmt alþjóða­lögum er einu ríki óheim­ilt að ráð­ast á annað. Ein und­an­tekn­ing er þar á. 

Ólíkt inn­rásinni í Írak 2003, þar sem Banda­ríkja­stjórn færði rök fyrir því að und­an­þága frá alþjóða­lögum gilti um árás­ina, á grund­velli neyðar vegna meintra gjör­eyð­ing­ar­vopna Íraks, hefur Trump­stjórnin ekki virt lög­mæti alþjóða­stofn­ana nægi­lega til að sann­færa þær eða banda­menn sína um lög­mæti og nauð­syn árásar á Íran. Ákvörð­unin var tekin milli Benja­míns Net­anjahú, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, og Donalds Trump. Sá síð­ar­nefndi mun hafa „fengið á til­finn­ing­una“ að Íranir ætl­uðu sér að ráð­ast á Banda­ríkin, mitt í við­ræðum ríkj­anna tveggja. Þá vís­aði hann til þess að ráð­ast þyrfti á Íran til þess að stöðva þróun kjarn­orku­vopna, en síð­asta sumar, þegar Banda­ríkin og Ísrael gerðu afmark­aða árás á Íran, sögð­ust þau hafa „gjör­eytt“ kjarn­orku­vopna­á­ætlun Írans. 

Trump hefur einnig vísað til þess að hann hefði séð tæki­færi í því að æðstu leið­togar Írans væru að koma saman og því mætti drepa þá.

Trump for­seti lýsti því í kosn­inga­bar­áttu fyrir for­seta­kosn­ing­arnar sem hann á end­anum vann, að hann hyggð­ist ekki hefja nein ný stríð. Síðar lýsti hann sér sem „frið­ar­for­seta“. Þá gerði hann kröfu til frið­ar­verð­launa Nóbels, þáðu þau úr hendi frið­ar­verð­launa­hafans og tók við nýstofn­uðum „frið­ar­verð­launum FIFA“ úr hendi for­seta alþjóða­knatt­spyrnu­sam­bands­ins.

Banda­ríkin telja sig ekki bera neina ábyrgð á því hvað ger­ist eftir árásir á Íran eða vera bundin reglum um stríðs­rekstur og alþjóða­lögum, sam­kvæmt yfir­lýs­ingum Donalds Trump for­seta og

For­set­inn segir að Banda­ríkin geti stundað stríð „að eilífu“ með þeim birgðum sem þau eiga.

Látnir í TeheranMynd frá írönsku frétta­stof­unni ISNA sýnir látna eftir loft­árás á Enghelab torgi í írönsku höf­uð­borg­inni.
Miðborg Teheran í dagReykur og eldur sést rísa upp úr mið­borg Teheran í Íran eftir loft­árásir, sem lík­lega eru frá Ísrael.

Á sama tíma er kostn­að­ur­inn við stríðs­rekst­ur­inn gríð­ar­legur og sívax­andi og ósjálf­bær halli á rekstri banda­ríska alrík­is­ins. Hvers vegna hófu Banda­ríkin stríðið?

Frétta­skýrendur hafa vísað til þess að árásin á Íran sé högg á Kína, þar sem Íran telj­ist banda­maður og hafi selt olíu til Kína. Aðrir benda á að enn eitt stríð Banda­ríkj­anna í Mið­aust­ur­löndum opni leið­ina fyrir Kína til að her­taka Taívan, þar sem Banda­ríkin muni ekki geta notað sömu vopn og skot­færi til að verja eyj­una.

Sömu­leiðis má spyrja hvort svarið sé ekki ein­fald­lega að Trump ákvað að ráð­ast á Íran vegna þess að hann gat það, eftir að hafa sýnt mikla getu í hern­að­ar­að­gerð­inni til að hand­taka Niculas Maduro án nokk­urra afleið­inga.

Næstu hern­að­ar­að­gerðir Banda­ríkj­anna munu lík­lega bein­ast gegn Kúbu. Trump segir það „tíma­spurs­mál“, en hann sagð­ist í gær vilja „bíða í nokkrar vikur“. „Við höfum notið gríð­ar­legrar vel­gengni á svo marga vegu. Ég byggði upp her­inn og end­ur­byggði hann á fyrsta kjör­tíma­bil­inu mínu. Við erum að nota her­inn meira en ég vil, svo ég segi eins og er, en þegar við notum hann, höfum við séð að hann virkar svo sann­ar­lega vel,“ sagði Trump í Hvíta hús­inu, þar sem fót­boltaliðið Inter Miami heim­sótti hann, og benti á að vel­heppnuð aðgerð til að hand­sama Niculas Maduro hefði lagt grunn­inn að árásinni á Íran.

Neyðarástand í Miðausturlöndum

Ríflega 1.200 manns eru látin í Íran, sam­kvæmt nýj­ustu tölum, og er fjöldi fólks á flótta í suð­ur­hluta Líbanon undan árásum Ísraela, sem hóta því að breyta hluta höf­uð­borg­ar­innar í Gazasvæðið til að upp­ræta Hisbollah-sam­tökin sem studd hafa verið af Íran til árása á Ísrael.

Flótta­manna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna hefur lýst yfir neyð­ar­á­standi í Mið­aust­ur­löndum, en Ísrael og Banda­ríkin segj­ast ætla að auka stríðs­rekst­ur­inn.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    If a war is illegal that war is a war crime!
    0
  • KHS
    Kristín Hildur Sætran skrifaði
    TAKK TAKK Jón Trausti og ritsjórn Heimildarinnar, heyrði nú rétt áðan fjögur fréttir RÚV þar var rétt minnst á í upphafi að líklegt að bandaríski herinn beri ábyrgð á árásinni á stúlknaskólannlaugardaginn á , en síðan í raun EKKERT MIKIÐ NÁNAR, svo ég fór að leita að nánari fréttum og fann þessa grein, eins gott að það er EINHVER MIÐILL HÉR HEIMA SEM ER EKKI MEÐVIRKUR MEÐ ÞESSU HRÆÐILEGA STRÍÐI.
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár