Trump vill ráða hver ræður í Íran

Á meðan Ísraelar hóta því að hluti Líbanons hljóti sömu örlög og Gaza-svæðið vill Donald Trump stjórna því hver verður þjóð­ar­leið­togi Írana.

Trump vill ráða hver ræður í Íran
Donald Trump Vill fá leiði­taman leið­toga í Íran. Mynd: AFP

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, krafð­ist þess í dag að fá að hafa hönd í bagga með vali á næsta æðsta leið­toga Írans, á meðan stríðið sem hófst með her­ferð Banda­ríkj­anna og Ísraels, sem leiddi til dauða Aya­tollah Ali Khamenei, geis­aði um Mið-Aust­ur­lönd og víðar.

Ísra­els­her sagð­ist hafa hafið árásir á Hezbollah-liða, sem studdir eru af Íran, í suð­ur­hluta Beirút, eftir að hafa gefið út for­dæma­lausa rým­ing­ar­við­vörun fyrir allt svæðið sem varð til þess að íbúar flúðu í ofboði. Einn af ráð­herrum Ísraels, fjár­mála­ráð­herr­ann Bezalel Smotrich, hót­aði því að hluti Beirút myndi hljóta sömu örlög og Gaza-svæðið.

Stríðið hefur teygt anga sína allt til strandar Srí Lanka, þar sem banda­rískur kaf­bátur sökkti írönsku her­skipi með tund­ur­skeyti, og Aserbaídsjan, sem hót­aði hefnd­ar­að­gerðum eftir að dróni hæfði flug­völl.

Trump hafn­aði í dag þeim mögu­leika að sonur Khameneis, Mojtaba Khamenei, tæki við af föður sínum sem æðsti leið­togi og kall­aði þann yngri „létt­vigt­ar­mann“.

„Ég verð að koma að skip­un­inni, eins og með Delcy,“ sagði Trump í við­tali við Axios og líkti því við Venes­ú­ela, þar sem Delcy Rodriguez, starf­andi for­seti, hefur unnið með honum undir ofbeld­is­hót­unum eftir að Banda­ríkin steyptu yfir­manni hennar, Nicolas Maduro, af stóli í hern­að­ar­árás.

„Sonur Khameneis er óásætt­an­legur fyrir mig. Við viljum ein­hvern sem mun koma á sátt og friði í Íran,“ sagði Trump við Axios og hót­aði frek­ari stríðs­á­tökum í fram­tíð­inni ef ekki fynd­ist betri kostur.

Ummælin benda til vilja til að vinna með ein­hverjum innan íslamska lýð­veld­is­ins frekar en að steypa stjórn­inni alfarið af stóli, þrátt fyrir ítrek­aðar hvatn­ingar Trumps til Írana um að rísa upp og end­ur­heimta land sitt.

Traðkað á TrumpMót­mæl­endur sem stefna að banda­ríska sendi­ráð­inu í Bagdad í Írak stíga ofan á mynd af Donald Trump Banda­ríkja­for­seta í dag.

Árásir á Beirút

Líbanon var dregið inn í vax­andi átök á mánu­dag þegar Hezbollah réðst á Ísrael til að hefna fyrir drápið á Khamenei.

Ísrael svar­aði með loft­árásum og sendi land­her inn í nokkur líbönsk landamæra­þorp.

Í skila­boðum til íbúa í suð­ur­hluta Dahiyeh-hverf­is­ins í Beirút sagði tals­maður Ísra­els­hers: „Bjargið lífi ykkar og rýmið heim­ili ykkar taf­ar­laust.“

Ísra­els­her til­kynnti síðar að hann hefði „hafið árásir á inn­viði Hezbollah“ í Dahiyeh.

Við­vör­unin varð til þess að fólk flúði svæðið og gríð­ar­legar umferð­ar­teppur mynd­uð­ust í útjaðri hverf­anna, á meðan fólk skaut úr byssum upp í loftið og hvatti heima­menn til að fara eins fljótt og auðið væri.

Á strönd í Beirút voru hund­ruð fjöl­skyldna, margar þeirra hræddar og reiðar, sam­an­komnar eftir að hafa flúið í flýti og höfðu engan annan stað að fara á.

Loftárás í LíbanonHér sést suð­ur­hluti Beirút, Haret Hreik, eftir loft­árás Ísraela í kvöld.

„Við flúðum úr úthverf­unum, við vorum nið­ur­lægð,“ sagði einn maður við AFP og neit­aði að gefa upp nafn sitt.

„Við munum sofa á göt­unni í nótt og guð einn veit hvað verður um okkur.“

Líbönsk yfir­völd segja að minnst 123 hafi lát­ist, 683 særst og að minnsta kosti 90.000 hafi flúið heim­ili sín frá því á mánu­dag.

Átök frá Srí Lanka til Aserbaídsjan

Við landa­mæri Írans var­aði nágranna­ríkið Aserbaídsjan við því að dróna­árás á flug­völl „yrði ekki látið óátalin“, sem vakti ótta um að annað land myndi bland­ast í stríðið.

Íran hafn­aði því að hafa staðið á bak við árás­ina og kenndi Ísrael um, en það kom ekki í veg fyrir að Ilham Aliyev, for­seti Aserbaídsjan, sak­aði stjórn­völd í Teheran um „hryðju­verk“.

Ástralía sendi á meðan tvær her­flug­vélar á vett­vang og Mark Carney, for­sæt­is­ráð­herra Kanada, sagði að hann gæti ekki úti­lokað að her­afli hans tæki þátt.

Eftir nýjar árásir á höf­uð­borg Írans sýndu myndir AFPTV kol­brunnin far­ar­tæki og skemmdar bygg­ingar, þar sem reykur steig enn upp úr sumum þeirra.

„Við erum að ganga í gegnum mjög mik­il­vægan kafla í sögu okkar og ég er ekki hræddur,“ sagði 30 ára íbúi í Teheran við AFP. „Vonin er það eina sem við höfum núna.“

Írönsk rík­is­stofnun sagði að tala lát­inna vegna árása Banda­ríkj­anna og Ísraels á íslamska lýð­veldið væri komin upp í 1.230, en frétta­stofa AFP gat ekki stað­fest þá tölu sjálf­stætt.

Banda­ríski her­inn hefur til­kynnt um dauða sex starfs­manna sinna frá því stríðið hófst á laug­ar­dag.

Abbas Araghchi, utan­rík­is­ráð­herra Írans, sýndi þrjósku í dag og sagði að stjórn hans hefði ekki leitað eftir vopna­hléi og sæi „enga ástæðu til að semja við Banda­ríkin“.

Varðandi mögu­leik­ann á inn­rás á landi sagði hann við banda­rísku sjón­varps­stöð­ina NBC News: „Við erum full­viss um að við getum tek­ist á við þá og að það yrði mikil hörm­ung fyrir þá.“

Ísrael sagði á meðan að 60 pró­sent af flug­skeytapöllum Írans og 80 pró­sent af loft­varn­ar­kerfum þeirra hefðu verið eyðilögð.

Zamir, her­for­ingi, til­kynnti um „næsta áfanga“ í her­ferð­inni og sagði að Ísrael væri með „fleiri óvæntar upp­á­komur í vændum“.

Frétta­menn AFP í Jer­úsalem heyrðu spreng­ingar í kjöl­far við­var­ana um yfir­vof­andi íranskar flug­skeyta­árásir.

Persaflói í skothríð

Átökin hafa ekki hlíft mold­ríkum kon­ungs­ríkj­unum við Persaflóa, sem venju­lega eru talin öruggt skjól á óstöð­ugu svæði, þar sem Íran hefur gert árásir á borgir og orku­inn­viði.

Þrettán manns, þar af sjö almennir borg­arar, hafa látið lífið í löndum við Persaflóa frá því að stríðið hófst, þar á meðal 11 ára stúlka í Kúveit.

Katar til­kynnti í dag að verið væri að stöðva eld­flauga­árás á meðan miklar spreng­ingar, sem frétta­menn AFP lýstu sem þeim öfl­ug­ustu hingað til, ómuðu um Doha, þar sem þykkur svartur reykur steig upp við sjón­deild­ar­hring­inn.

Sex manns særð­ust einnig í höf­uð­borg Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæmanna, Abu Dhabi, af völdum braks úr dróna sem var grandað, að sögn yfir­valda.

Í Barein olli írönsk eld­flauga­árás eldi í helstu rík­is­reknu olíu­hreins­un­ar­stöð­inni, en síðar náði slökkvi­lið tökum á eld­inum, að því er sam­skipta­mið­stöð Barein greindi frá.

Og sumir vest­rænir erind­rekar í Ríad, höf­uð­borg Sádi-Arabíu, sögð­ust hafa fengið fyr­ir­mæli í dag um að halda sig í skjóli, á meðan vitni sagði að sendi­ráða­hverf­inu í borg­inni hefði verið lokað.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár