Fjölga kjarnorkuvopnum og dreifa um Evrópu

Macron Frakk­lands­for­seti kynn­ir sam­starf Evr­ópu­þjóða um fæl­ingu með kjarn­orku­vopn­um.

Emmanuel Macron, forseti Frakklands, sagði í ræðu í dag að átta Evrópuríki hefðu samþykkt að taka þátt í „fullkomnu“ kjarnorkufælingarkerfi sem Frakkland leggur til

Löndin, sem eru Þýskaland, Bretland, Pólland, Holland, Belgía, Grikkland, Svíþjóð og Danmörk – munu geta hýst franska „strategíska flugherinn“, sem mun þannig geta „dreifst um álfuna“ til að „flækja útreikninga andstæðinga okkar,“ sagði hann.

Kerfið gæti einnig falið í sér „hefðbundna þátttöku bandamanna í kjarnorkustarfsemi okkar,“ svo sem nýlegar heræfingar þar sem breskar hersveitir hafa tekið þátt, bætti Macron við.

Macron sagði að stjórnvöld í París, London og Berlín muni „vinna saman að verkefnum sem snúa að mjög langdrægum flugskeytum“.

„Að því er varðar getu til langdrægra árása munu Þýskaland, Bretland og Frakkland ... vinna saman að verkefnum sem snúa að mjög langdrægum flugskeytum,“ sagði Macron í ræðu sinni frá kjarnorkukafbátastöðinni Ile Longue í Frakklandi.

Macreon sagði að Frakkland myndi fjölga kjarnaoddum sínum þegar hann …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Endurnýjun Evrópu

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár