Starfsmenn Arion banka fá nýjan kaupréttarpakka

Kjara­bót fyr­ir banka­starfs­menn í vax­andi hagn­aði.

Samkvæmt nýrri kaupréttarstefnu Arion banka, sem kynnt var í lok dags, fá 837 starfsmenn bankans og dótturfélaga að gera kaupréttarsamninga.

Í þeim felst að kaupa hluti um það bil á núverandi gengi bankans næstu fimm árin. Samtals gildir kaupréttur fyrir tæplega 6,3 milljónir hluta á ári, sem jafngildir á gengi dagsins í dag um 1,5 milljörðum króna árlega.

„Er markmið áætlunarinnar að samþætta hagsmuni starfsfólks við langtímahagsmuni samstæðunnar,“ segir í yfirlýsingu bankans.

Kauprétturinn tryggir að starfsmennirnir geta innleyst hagnað ef gengið hækkar á tímabilinu. Gengi bankans hefur hækkað um 26% síðustu 12 mánuði í kauphöllinni. Hækki það aftur um sama hlutfall yrði mögulegur samanlagður söluhagnaður starfsmanna 390 milljónir króna fyrir hækkunina eina og sér.

Þá er horft fram hjá arðgreiðslum og áhrifum af endurkaupum hlutabréfa, sem bankinn stundar. Bankinn stefnir á að greiða 11,5 krónur í arð fyrir hvern hlut og yrðu því arðgreiðslur til starfsmanna vegna kaupréttar 72 milljónir króna á ári fyrir kauprétt hvers árs.

Arion banki hagnaðist um 32,5 milljarða króna í fyrra og jókst hagnaðurinn úr 26,1 milljarði króna.

Gengi Arion er í dag 198,5 en kauprétturinn gefur rétt til að kaupa síðar á genginu 199,61, óháð því hvert gengið verður þá. Eldri kaupréttarsamningar fyrir árið 2026 heimilar starfsfólki að kaupa mismarga hluti á genginu 140,56, 143,36 og 155,93. Söluhagnaður af þeim kaupum miðað við gengið í dag er samtals 39 milljónir króna, fyrir utan arðgreiðslur og endurkaup.

Aðalfundur Arion banka verður haldinn 11. mars næstkomandi og verður þá tekin ákvörðun um arðgreiðslur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár