Dæmdar fyrir mótmæli á hvalveiðiskipi

Tvær kon­ur voru í dag dæmd­ar til að greiða sekt fyr­ir að hafa dval­ið í hval­veiði­skip­um við Reykja­vík­ur­höfn í rúm­an sól­ar­hring til að mót­mæla hval­veið­um á Ís­landi.

Dæmdar fyrir mótmæli á hvalveiðiskipi
Sahar Babaei Sahar Babaei, einnig þekkt sem Anahita Sabaei, var viðstödd dómsuppkvaðninguna ásamt Katrínu Oddsdóttur, lögmanni kvennanna. Mynd: Golli

Tvær erlendar konur sem mótmæltu hvalveiðum Íslendinga með því að klifra um borð í hvalveiðiskip í Reykjavíkurhöfn haustið 2023 og dvelja þar í meira en sólarhring voru sakfelldar og dæmdar til að greiða sekt upp á 200 þúsund krónur hvor og málskostnað.

„Þetta tapaðist,“ sagði Katrín Oddsdóttir, verjandi kvennanna, eftir að dómurinn var kveðinn upp. Hún sagði ekkert tjón hafa orðið af gjörðum kvennanna og að málið hafi varðað tjáningarfrelsi.

Hún sagði að konurnar mundu skoða að áfrýja í málinu. „Akkúrat núna eru þetta vonbrigði og ekki gott fyrir íslenskt réttarkerfi að mínu mati,“ sagði hún.

Sahar Babaei, íranskur ríkisborgari, og Elissa May Phillips, breskur ríkisborgari, voru ákærðar fyrir húsbrot og brot gegn lögum um siglingarvernd. Í september 2023 klifruðu þær upp í útsýnisturna í möstrum hvalveiðiskipanna Hvals 8 og Hvals 9 í eigu fyrirtækisins Hvals hf. og héldu þar til í 33 klukkustundir. Fyrirtækið kærði konurnar í kjölfarið.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Ég er ekkert viss um að dómstóll sögunnar verði þeim endilega svo óvilhallur. En burtséð frá þessu máli þá eru dómstólar bara leikvöllur peninganna, dómar falla lang oftast þeim fjársterkari í vil. Þar fæst sjaldnast réttlæti heldur bara úrskurður.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Frjálshyggjumenn úr viðskiptalífinu gefa „þekktum hugsuðum“ sviðið
3
Innlent

Frjáls­hyggju­menn úr við­skipta­líf­inu gefa „þekkt­um hugs­uð­um“ svið­ið

Stjórn­end­ur Reykja­vík Fin­tech og Bæj­ar­ins Beztu Pyls­ur hafa stofn­að við­burða­fyr­ir­tæki eft­ir að hafa hald­ið fyr­ir­lestra með Jor­d­an Peter­son. Fyrstu við­burð­irn­ir eru með Frosta Sig­ur­jóns­syni um lofts­lags­mál og Bjórkast­inu, hlað­varpi þar sem stjórn­end­ur kenna sig við öfga­hægri og „kyn­þátt­ar­aun­sæi“.
Íslensku fyrirtæki líkt við hertæknifyrirtækið Palantir
6
Viðskipti

Ís­lensku fyr­ir­tæki líkt við her­tæknifyr­ir­tæk­ið Pal­ant­ir

Stofn­end­ur ís­lenska hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Strat­is vilja ekki taka und­ir nafn­bót­ina „Pal­ant­ir Evr­ópu“ en hug­bún­að­ur þess hef­ur ver­ið not­að­ur af Úkraínu­her í drón­ar­hern­að. Smári McCart­hy, fyrr­ver­andi þing­mað­ur Pírata, er stofn­andi en sjóð­ur­inn Darkst­ar, sem sér­hæf­ir sig í hern­að­ar­mál­um, fjár­fest­ir.

Mest lesið í mánuðinum

Leynifundur Sigmundar Davíðs með Repúblikönum
4
RannsóknMAGA-tengingar Miðflokksins

Leynifund­ur Sig­mund­ar Dav­íðs með Re­públi­kön­um

Þrýsti­hóp­ur MAGA-hreyf­ing­ar­inn­ar borg­aði fyr­ir Norð­ur­landa­ferð hóps hátt­settra Re­públi­kana til að hitta Sig­mund Dav­íð Gunn­laugs­son og aðra áhrifa­menn af hægri væng stjórn­mál­anna. Með­al skipu­leggj­enda voru að­il­ar grun­að­ir um að reyna að stela for­seta­kosn­ing­un­um 2020 fyr­ir Don­ald Trump. Heim­ild­in rek­ur tengsl hug­veitna sem fjár­magn­að­ar eru af banda­rísk­um auð­mönn­um til Ís­lands.
Greiddu fyrrverandi oddvita 7 milljónir eftir að Framsókn fékk bæjarstjórastólinn
5
Stjórnmál

Greiddu fyrr­ver­andi odd­vita 7 millj­ón­ir eft­ir að Fram­sókn fékk bæj­ar­stjóra­stól­inn

Ný­stofn­að fé­lag Ág­ústs Bjarna Garð­ars­son­ar, fyrr­ver­andi odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hafnar­firði, fékk greiðsl­ur fyr­ir ráð­gjafa­störf eft­ir að flokks­bróð­ir hans, Valdi­mar Víð­is­son, tók við sem bæj­ar­stjóri. Ráð­gjafa­störf fyrr­um bæj­ar­stjóra Mos­fells­bæj­ar, Har­ald­ur Sverris­son, hóf­ust í tíð Rósu Guð­bjarts­dótt­ur, flokks­syst­ur hans.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár