Netverjar óánægðir með Takk krónur: „Lækkið bara verðið“

Nokk­urrar óánægju hefur gætt á sam­fé­lags­miðlum með nýtt vild­ar­kerfi Haga, Takk krónur. Sumum þykir afslátt­ur­inn dræmur en aðrir hafa áhyggjur af per­sónu­vernd­ar­skil­málum smá­forrits­ins. Í not­enda­skil­málum kemur fram að Hagar fletti upp póst­núm­eri og kyn­skrán­ingu not­enda.

Netverjar óánægðir með Takk krónur: „Lækkið bara verðið“
Vild­ar­kerfi Hagar nota kenni­tölur not­enda til að fletta upp póst­núm­eri og kyn­skrán­ingu þeirra í Þjóðskrá Íslands „til að fá inn­sýn inn í kaup­hegðun hópa“. Mynd: Golli

Í jan­úar inn­leiddu Hagar, sem reka Bónus, Hagkaup og Eldum rétt, vild­ar­kerfið Takk krónur. Það gengur þannig fyrir sig að fyrir til­teknar vörur geta við­skipta­vinir áunnið sér Takk krónur sem hægt er að nýta í versl­unum Haga. 

Á net­inu hefur orðið vart við tals­verða gagn­rýni á það sem fólki þykir vera „lít­ill sem eng­inn afsláttur,“ eins og einn með­limur hóps­ins „Vertu á verði - eft­ir­lit með verð­lagi“ orð­aði það.

Vörurnar kosta fullt verð í búð­inni nema fólk sæki sér app og skanni „Takk kort“ í sím­anum sínum á kass­anum. Þá fæst afsláttur af til­teknum „Takk vörum“ sem safn­ast á aðgang­inn og hægt er að nýta síðar. Allar upp­lýs­ingar um kaupin vist­ast svo í app­inu.

Fjórum dögum eftir að vild­ar­kerf­inu var komið á fót var greint frá því að 20 þús­und lands­menn hefðu skráð sig í það. Takk appið var þá efsta á Íslandi í App og Play …

Kjósa
41
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Bjarni Ólafsson skrifaði
    Maður græðir þá amk að hafa séð heimskulegustu auglýsingaherferð í heimi í sjónvarpinu!
    2
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það er magnað hvað almenningur er til í að láta taka sig í bólinu. Það er bara einn höfuð tilgangur með þessarri tækni sem er að hagnast sem mest á almenningi. Svo í leiðinni (af því að það er búið að gefa frjálsan aðgang að rössum okkar) þá eru þarna fínar pólittískar upplýsingar. Tæknin er dásamleg meðan hún er ekki misnotuð.(En hvenær geristþað ekki?$?$)
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár