Landið sem enginn á

Græn­lend­ing­ar og Dan­ir hafa stað­ið þétt sam­an and­spæn­is hót­un­um Don­alds Trump að eign­ast Græn­land en flók­ið ný­lendu­sam­band þjóð­anna er óupp­gert. Græn­land hef­ur reynt að laða að fjár­fest­ing­ar, styrk­ur efna­hag­ur er und­ir­staða sjálf­stæð­is. En nú virð­ast Banda­ríkja­menn vera að reyna að „bíta sig inn í Græn­land.“

Landið sem enginn á
Hvert liggur leið grænlenskrar stelpu? Mynd: Golli

IAlþjóðaflugvöllurinn í Nuuk

Á nýja alþjóðaflugvellinum kenndum við Nuuk má sjá um tuttugu þýska hermenn í einkennisbúningi, á leið heim af NATO-æfingu. Einn þeirra kaupir sér sælgæti: Gajol og súkkulaði. Hótanir Trumps liggja í loftinu þegar blaðamenn og ljósmyndari Heimildarinnar lenda á landi sem á sig sjálft því á Grænlandi á enginn land, fólk fær aðeins skika til afnota; Grænland á sig sjálft.

Sú staðreynd ein lýsir upp andstæður veruleika þeirra sem heimspressan hefur fjallað um síðustu vikur. Annars vegar fyrrum fasteignamóguls í forsetaembætti umlukinn þef af kapítalisma í hanastélsboðum á Manhattan. Hins vegar samfélag með innbyggða sjálfbærni í lifnaðarháttum sínum, nefnilega Grænland.

Í fyrrnefndum veruleika þrífst erfingi Estée Lauder, hinn 81 árs Ronald Lauder, sem þekkt hefur Trump í sextíu ár og verið kallaður sparring-partner hans, eins konar boxþjálfari í iðu Manhattan.  Orð Johns nokkurs Bolton, fyrrum þjóðaröryggisráðgjafa Trumps, eru höfð fyrir því að það hafi verið Lauder …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár