Þegar ég sest niður og lít yfir feril minn sem leikari, fjölskyldufaðir og fyrirlesari um mikilvægi húmors fyrir hamingju og heilsu, þá fyllist ég þakklæti vegna allrar þeirrar reynslu og þeirra upplifana sem hafa auðgað líf mitt og starf á liðnum árum. Í gegnum reynslu mína sem handlaginn heimilisfaðir og störf mín sem fagstjóri í kvikmyndaskóla og leikari á kvikmyndasetti í fjölda verkefna, hef ég náð að kjarna fyrir mér mikilvægi þess að skapa andrúmsloft léttleika og leikgleði á sama tíma og metnaður, vinnusemi og agi fær að ráða för.
Húmorinn breytir öllu
Það urðu straumhvörf á mínum ferli sem leikari þegar ég uppgötvaði nánast fyrir einskæra tilviljun að leikgleðin væri í raun lykillinn að velgengni í starfi. Eftir að hafa tekið sjálfan mig mjög alvarlega áratugum saman og á endanum keyrt mig í kulnun, setti ég mér það sem markmið að ég yrði að hafa gaman af vinnunni. Þetta …


























































Athugasemdir