Samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar hafa sautján starfsmenn sagt starfi sínu lausu eða verið reknir á Sólheimum í Grímsnesi á því ári sem liðið er frá brotthvarfi Kristins Ólafssonar úr starfi framkvæmdastjóra. Samkvæmt ársreikningi fyrir árið 2024 var meðalfjöldi starfsmanna Sólheima ses. 74, en tekur það tillit til fleira starfsfólks en starfar innan félagsþjónustunnar þar sem starfsmannaveltan mun vera mest.
„Þetta er mikil starfsmannavelta,“ segir Hallbjörn V. Friðhólm, þroskaþjálfi sem sagt var upp í október síðastliðnum eftir átta ára starf á Sólheimum. „Þetta er þannig vinna að það er mikil starfsmannavelta en miðað við það hefur verið stöðugleiki undanfarin ár.“
Sigurjón Örn Þórsson, stjórnarformaður Sólheima, segir hins vegar að ekki sé um óeðlilega starfsmannaveltu að ræða. „Vissulega hafa nokkrir starfsmenn horfið á braut, en það er ekki óeðlilegt þegar breytingar eru gerðar. Aðeins einum starfsmanni hefur verið sagt upp frá því nýr framkvæmdastjóri tók við störfum. Þá var einn starfsmaður ekki endurráðinn …











































Athugasemdir