Íslenskt kollagen framleitt á Blönduósi

Norðan heiða, nánar til­tekið á Blöndu­ósi, er íslenskt kollagen fram­leitt. Um er að ræða fyr­ir­tækið Protis sem nýtir sér verk­smiðju Vilko þar á slóðum, en um er að ræða sömu eig­enda­hópa að miklu leyti. Það er ýmis­legt í far­vatn­inu hjá þeim, meðal ann­ars sam­starf við drykkj­ar­vöru­fram­leið­endur erlendis sem eig­and­inn bindur miklar vonir við.

Íslenskt kollagen framleitt á Blönduósi

„Þetta er smá flókið kannski við fyrstu sýn, en við hjá fyr­ir­tæk­inu Kavita erum meiri­hluta­eig­endur í Vilko á Blöndu­ósi. Svo er fram­leiðslan undir fram­leiðslu­fyr­ir­tæki sem heitir Nordpro og það fyr­ir­tæki er með aðsetur inni í Vilko. Við sem sagt samnýtum starfs­fólkið, hús­næðið og hug­vitið og svo er Kavita sölu­end­inn sem á vöru­merkin. Við erum með 20 störf þarna fyrir norðan, erum að þróa og fram­leiða íslensk fæðu­bót­ar­efni og leggjum áherslu á hrein­leika og að allt sé nátt­úru­legt og hreint,“ segir Katrín Amni, eig­andi Kavita. 

Katrín hefur verið eig­andi í 10 ár hjá Kavita, sem hét áður Nátt­úru­smiðjan, en hún segir að árið 2012 hafi Vilko byrjað fæðu­bót­ar­fram­leiðslu í hylkjum. Katrín segir að Kári Kárason, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Vilko, hafi fund­ist frá­bær hug­mynd að fara að hylkja eitt­hvað af þeim kryddum sem Vilko var að fram­leiða, en fyrir þann tíma var búið að rann­saka til dæmis íslensk fjalla­grös á þessum slóðum. 

…
Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristín R. Magnúsdóttir skrifaði
    Mjög góð grein og spennandi. Gott að fólk hugsi og framleiði vörur úr íslensku hráefni m.a. ísl.vatni. Óska ykkur gleðilegs sumars og velgengni á ykkar sviði.
    0
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Það er frábært að lesa um það þegar fólk sýnir eigin sjálfsbjargarviðleitni íheimahögum þegar þau missa spón úr aski sínum
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu