Langþráður draumur um búskap rættist

Parið Vífill Eiríks­son og Alej­andra Soto Hernández voru orðin þreytt á borg­ar­líf­inu í Reykja­vík og höfðu auga­stað á búskap á lands­byggð­inni. Eftir stutta íhugun festu þau kaup á bænum Syðra-Holti í Svarf­að­ar­dal árið 2021 og fluttu þangað ásamt for­eldrum Vífils, þeim Eiríki Gunn­ars­syni og Inger Steins­son og systur hans, Ilmi Eiríks­dóttur. Þar rækta þau græn­meti á líf­rænan máta undir nafn­inu „Yrkja Svarf­að­ar­dal” og stefna á sauða­mjólk­ur­fram­leiðslu á næstu miss­erum.

Vífill segir að fjöl­skyldan sjái ekki eftir þess­ari ákvörðun, en faðir hans er lærður bóndi og hafði lengi dreymt um að láta þann draum ræt­ast að sinna búskap. „Pabbi gerð­ist bóndi árið 1989, lauk námi þá, en varð samt aldrei bóndi. Þannig að þetta var draumur hans sem hann hafði svo­lítið gleymt en varð að veru­leika með þessu. Við leit­uðum að stað um allt land og fundum stað fyrir norðan. Við erum þrjár fjöl­skyldur sem koma að þessum búskap og erum bara að búa til lítið sam­fé­lag hérna. Við kærastan mín vorum ákveðin í að yfir­gefa borg­ina, höfðum rekið veit­inga­stað í Reykja­vík sem hét Bio Borgari og mamma og pabbi höfðu kennt við Waldorfskólann í ein­hver 30 ár. Við vorum sam­mála um að gaman væri að gera eitt­hvað svona og sjáum ekki eftir þeirri ákvörðun,“ segir Vífill.

Fjöl­skyldan í Syðra-Holti ræktar græn­meti á líf­rænan hátt og að sögn Vífils …

Kjósa
33
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár