Norðurslóðir hlýnuðu tvöfalt á við meðalhita jarðar

Lofthiti á norð­ur­slóðum í ár var sá hæsti sem mælst hefur frá alda­mót­unum 1900 og tíu síð­ustu ár hafa verið þau tíu hlýj­ustu frá upp­hafi mæl­inga. Veð­ur­fræð­ingur segir Ísland ekki fara var­hluta af þessum breyt­ingum.

Hafís
Hafís Hafís við Ísland er minni, dreifð­ari og þynnri en áður og er þar áhrif að gæta frá hlýnun á Norð­ur­slóðum. Mynd: Patrick Kelley

Norð­ur­slóðir hitna mun hraðar en jörðin í heild sinni sem mun hafa mikil áhrif á líf­ríki og afkomu fólks við Norð­ur­heim­skautið. Und­an­farin 20 ár hefur hita­stig að hausti og vetri hækkað meira en tvö­falt á við hita­stig á heims­vísu.

Þetta kemur fram í Arctic Report Card (ARC) 2025, tutt­ug­ustu útgáfu þeirrar skýrslu sem gefin er út af banda­rísku rík­is­stofn­un­inni NOAA sem fylgist með veð­ur­fari á norð­ur­slóðum.

Lofthiti á norð­ur­slóðum und­an­farið ár mæld­ist sá hæsti síðan að minnsta kosti árið 1900. Á norð­ur­slóðum var einnig hlýjasta haust síðan þá, næst­hlýjasti vetur og þriðja hlýjasta sumar. Þá hafa síð­ustu tíu ár verið þau tíu hlýj­ustu sem mælst hafa á norð­ur­slóðum.

„Við höfum séð það á Íslandi að jöklar hafa rýrnað mikið“

Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur segir skýrsl­una sýna miklar breyt­ingar á lofts­lag­inu sem Ísland fer ekki var­hluta af. „Við erum svo­lítið í jaðr­inum á þessu,“ segir …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Lárus Jóhannsson skrifaði
    Bara að mestu jarðfræðilegar breytingar.
    Hættið að vekja kvíðaröskun hjá börnum og ungmennum um að heimsendir sé í nánd.
    Einhverjir kunna að hafa lífsviðurværi sitt á slíkum heimsendaspám.
    Heimurinn hefur verið að hlýna og kólna í jarðsögulegu tilliti í milljónir ára.
    -5
    • GF
      Guðni Freyr skrifaði
      Má ég spyrja þig einnar hreinnar spurningar
      ef stærstu olíufyrirtæki heims vissu fyrir 40–50 árum að áframhaldandi brennsla jarðefnaeldsneytis myndi valda hraðri hlýnun, jöklarýrnun og hækkun sjávarstöðu, og gerðu tölfræðilegar spár sem hafa raungerst mjög nákvæmlega — ert þú þá ósammála þeirra eigin vísindamönnum? Ertu ósammála óliufyrirtækjunum sem vissu og viðurkenndu þetta fyrir 40 árum, en kusu að fela gögnin fyrir almenning?
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár