„Snjóflóðið mun koma þaðan“

Öss­ur Skarp­héð­ins­son þá­ver­andi um­hverf­is­ráð­herra seg­ir Heið­ar Guð­brands­son, snjó­at­hug­un­ar­mann á Súða­vík, hafa til­kynnt sér að hættumat­ið væri rangt. Rétt fyr­ir snjóflóð­ið fór Öss­ur að skoða að­stæð­ur og gerði í kjöl­far at­huga­semd við hættumat­ið.

„Snjóflóðið mun koma þaðan“
Össur Skarphéðinsson Var umhverfisráðherra þegar snjóflóðið á Súðavík féll. Mynd: hordur sveinsson

„Hann var klárlega búinn að vara við þessu,“ segir Össur Skarphéðinsson um Heiðar Guðbrandsson, snjóathugunarmaður í Súðavík. Össur var umhverfisráðherra þegar snjóflóðið á Súðavík féll en í aðdraganda þess hafði hann verið í samskiptum við Heiðar sem tjáði honum að hættumat væri rangt. 

Heiðar hringdi í Össur skömmu fyrir jólin 1994. „Hann tjáði mér þær áhyggjur sínar að það væru ekki réttar áherslur í eftirliti og viðbúnaði,“ segir Össur í viðtali við Heimildina. 

„Þegar við höfðum átt tvö símtöl bað ég um að fá að sjá snjóflóðamat á þessu svæðu,“ segir Össur. „Það leit þannig út að ég vildi sjá þetta sjálfur.“ Hann segir að á þessum tíma hafi hættumat fallið undir félagsmálaráðuneytið en snjóathugunarmenn voru á vegum umhverfisráðuneytisins. 

„Snjóflóðið mun koma þaðan“ 

Össur fór vestur eftir að hann fékk snjóflóðamatið í hendur. Þar sýndu fulltrúar úr sveitastjórninni honum svæðin sem féllu undir matið þar sem þau töldu mestar líkur …

Kjósa
43
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár