„Það er verið að hvetja til ofneyslu“

Arion banki aug­lýsir sér­stak­lega greiðslu­dreif­ingu kredit­korta þar sem við­skipta­vinir eru hvattir til að „dreifa jól­unum á fleiri mán­uði“. Formaður Neyt­enda­sam­tak­anna varar við „kaupa núna, borga seinna“ hug­ar­fari, þrátt fyrir að fólk vilji gera vel við sig um jólin.

„Það er verið að hvetja til ofneyslu“
Breki Karlsson Formaður Neyt­enda­sam­tak­anna varar við greiðslu­dreif­ingu og öðrum mögu­leikum sem lán­töku sem hvetja til ofneyslu. Mynd: Golli

Formaður Neyt­enda­sam­tak­anna segir að hvatt sé til ofneyslu á tímum þar sem fólk eigi erfitt með að láta enda ná saman. Jólin séu sér­stak­lega hættu­leg hvað þetta varðar.

Arion banki aug­lýsir nú sér­stak­lega greiðslu­dreif­ingu kredit­korta í til­efni af jól­unum. „Dreifðu jól­unum á fleiri mán­uði“ er fyr­ir­sögn á vef­síðu bank­ans. „Greiðslu­dreif­ing kredit­korta getur verið hentug leið til að mæta tíma­bundnum sveiflum í útgjöldum.“

Bankinn býður upp á greiðslu­dreif­ingu til 18 mán­aða. Lág­marks­upp­hæð er 30 þús­und krónur, greiða þarf 10% af heild­ar­upp­hæð reikn­ings­ins en við­skipta­vinur getur verið með allt að 10 slíkar dreif­ingar í gangi í einu.

Samkvæmt verð­skrá bank­ans er stofn­gjald greiðslu­dreif­ingar 390 krónur, færslu­gjald 220 krónur, mán­að­ar­gjald 1.195 krónur og breyt­inga­gjald 895 krónur. Þá eru ótaldir vextir sem nema 15% sam­kvæmt vaxta­töflu Arion banka.

„Við gjöldum var­hug við þessu,“ segir Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna, um aug­lýs­ingu Arion banka og sam­bæri­leg …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár