Arnaldur og Yrsa fá 20 milljónir hvort

Arnaldur Indriðason og Yrsa Sigurðar­dóttir hafa bæði fjárfest í verð­bréfum í gegnum félögin sem halda utan um ritstörf þeirra. Arnaldur á verðbréf fyrir meira en milljarð og Yrsa hefur fjárfest í skráðum hluta­bréfum.

Vegnar vel
Vegnar vel Arnaldur hefur meiri tekjur af fjár­magni en hann hefur af rit­störfum. Rekstr­ar­tekjur félags­ins hans námu 68 millj­ónum en 74 millj­óna tekjur voru af fjár­fest­ingum. Mynd: afp

Glæpa­sagna­höfundarnir Arnaldur Indriðason og Yrsa Sigurðar­dóttir fá 20 milljónir króna hvort í arðgreiðslur úr félögunum sem halda utan um ritstörf þeirra. Afkoma fyrir­tækjanna er þó æði misjöfn en bæði eru þau meðal vinsælustu glæpa­sagna­höfunda þjóðarinnar. Þau byggja afkomu sína mismikið á ritstörfum. 

Félag Arnaldar, Gilhagi ehf., skilaði 104 milljóna króna hagnaði á árinu 2024 og átti eignir að verðmæti um 1.300 milljóna króna. Þar á meðal voru verðbréf sem voru metin á rúman milljarð í lok árs og handbært fé upp á 220 milljónir króna. Meirihluti af tekjum félagsins kom úr fjár­festingum, en ekki af ritstörfum. 

Yrsa Sigurðar­dóttir ehf., hagnaðist um 13,7 milljónir króna á sama tíma, sem tæplega tvöfalt meira en árið áður. Félagið átti eignir upp á 83 milljónir króna og stafar afkoma þess fyrst og fremst af ritstörfum Yrsu.

Milljarður í verðbréfum

Rekstrar­tekjur félags Arnaldar námu tæpum 68 milljónum króna, svipað og árið …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Svo segja menn að glæpir borgi sig ekki !
    1
  • GDE
    Guðrún Dagný Einarsdóttir skrifaði
    Þau skrifa bækur sem seljast bæði á Íslandi og erlendis, er eitthvað óeðlilegt við að fá tekjur fyrir það?
    0
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Ja hérna. Einhvern tíma hefði þetta verið saga til næsta bæjar. Vonandi láta þau eitthvað annað gott af sér leiða í samfélaginu en að raka saman gríðarlegum fjármunum. Þetta gildir jú um alla.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár