„Ég veit ekki hvernig ég lifði af“

„Mér voru gefin erfið spil og þegar þú kannt ekki leik­inn er flókið að spila vel úr þeim,“ segir Arnar Smári Lárusson, sem glímdi við alvar­legar afleið­ingar áfalla og reyndi allar leiðir til þess að deyfa sárs­auk­ann, þar til það var ekki aftur snúið. „Ég var veikur, brot­inn og fannst ég ekki verð­skulda ást.“ Hann áréttar mik­il­vægi þess að gef­ast aldrei upp. „Það er alltaf von.“

„Ég veit ekki hvernig ég lifði af“

„Það er alltaf von,“ segir Arnar Smári Lárusson, einn týndu strák­anna sem steig fram í for­síðu­um­fjöllun Heim­ild­ar­innar, þar sem þeir lýstu reynslu sinni af kerf­inu sem átti að grípa þá sem börn, ung­lingar og ungir menn. Arnar var kom­inn á enda­stöð, búinn að skrifa fjöl­skyld­unni kveðju­bréf og til­bú­inn til þess að kveðja þennan heim, áður en hann náði bata. „Ég veit ekki hvernig ég lifði af, en ég gerði það,“ segir hann og staldrar aðeins við, „sem betur fer.“ 

Segja allir sömu söguna 

Arnar Smári seg­ist hafa farið í gegnum lífið með þung áföll í bak­pok­anum sem hann upp­lifði í barn­æsku, sem hann treysti sér ekki til að tala um og fékk þar af leið­andi ekki stuðn­ing til að vinna úr. 

Sem barn hafi hann stundað það að leika sér á gráa svæð­inu. „Ég var mik­ill orku­þjófur og krafð­ist mik­ils. Svo varð ég fyrir alvar­legum áföllum þar sem brotið …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ásgeir Gautason skrifaði
    með aldrinum að þá lærir maður að áfôll fortíðarinnar er fjársjóðurinn manns. án þeirra væri maður sennilega ennþá fjötraður af ótta við annað fólk. Ef þú þú finnur einhvertiman vera kominn og vera fastur í andlga í helvíti, og þu veist bara um eina leið útur því, og að fá hjálp er ekki inní myndinni, þ á legg ég framm þriðja valmöguleikan, og reyna með ôllum manns vilja að gera helvíti á jörð ástand sem maður nær gera bara nokkuð kósý, vera ekki að fara i fortiðina, temja sér það umfram allt. Og með þvi kemur þakklætið . Og hvað getur maður beðið um meira i þessu lífi :) .. þú ert nákvæmlega á þeim stað sem þú átt að vera á akkúrat núna.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Týndu strákarnir

„Starfsmenn hafa verið hræddir“
InnlentTýndu strákarnir

„Starfs­menn hafa verið hræddir“

Á Stuðlum hefur sér­stöku öryggis- og við­bragð­steymi hefur verið komið á til að takast á við árásir á starfs­menn og tryggja að þving­anir gagn­vart börnum fari fag­lega fram. Tengsl eru besta for­vörnin segir starf­andi for­stöðu­maður en það dugar ekki alltaf til. Starfs­menn hafa lent í því að það er hrækt á þá, þeir bitnir, skall­aðir og nef­brotnir. Sparkað hefur verið í haus­inn á starfs­mani, hár rifið af höfði starfs­manns og brotin tönn.
Syrgja fyrrverandi skjólstæðing: Til mikils unnið ef hægt er að koma heilunarferli af stað
InnlentTýndu strákarnir

Syrgja fyrr­ver­andi skjól­stæð­ing: Til mik­ils unnið ef hægt er að koma heil­un­ar­ferli af stað

„Við leyfum ekki neyslu hér inni en hver er hinn val­mögu­leik­inn?“ spyr starf­andi for­stöðu­maður Stuðla. Reglur kveða skýrt á um að fíkni­efni séu bönnuð á Stuðlum en börnum er ekki vísað út vegna neyslu. Ef hægt er að koma heil­un­ar­ferli af stað er til mik­ils unnið. „Þetta eru börn sem við þurfum að vernda,“ segir for­stöðu­mað­ur­inn, en starfs­fólkið syrgir fyrr­ver­andi skjól­stæð­ing.
Stuðlar: „Með börn sem voru sekúndum frá því að deyja“
VettvangurTýndu strákarnir

Stuðlar: „Með börn sem voru sek­úndum frá því að deyja“

Mann­skæður bruni, starfs­maður með stöðu sak­born­ings og fíkni­efnin flæð­andi – þannig hafa frétt­irnar verið af Stuðlum. Starfs­menn segja mikið geta gengið á. „Þetta er stað­ur­inn þar sem börnin eru stoppuð af,“ segir starf­andi for­stöðu­maður. Flestir sem þangað koma hafa orðið fyrir alvar­legum áföllum og bera sár sem getur tekið ævina að gróa.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár