Tölvuleikjanotkun er að breyta nýrri kynslóð
Séð frá vinstri, Daníel Þröstur, Styrmir Egilsson, Hall­steinn Skorri og Knútur Atli. Mynd: Víkingur

Tölvuleikjanotkun er að breyta nýrri kynslóð

„Ég hef alveg tekið eftir því að þegar ég fór að spila meira online, hitt­umst við sjaldnar í eigin per­sónu,“ segir Styrmir Egilsson. Fjórir nem­endur Mennta­skól­ans við Hamra­hlíð ræða um áhrif tölvu­leikja á líf þeirra, sam­skipti og tungu­mál. Ársæll Már Arnarson pró­fessor segir tölvu­leiki hafa mikil áhrif á menn­ing­una.

Tölvu­leikir eru að móta heila kyn­slóð ungra karl­manna sem sækj­ast frekar í slíka afþr­ey­ingu frekar en stúlkur. Þeir telja sig ekki aðeins læra meira af tölvu­leikja­notkun en stúlkur heldur er það mat þeirra að tölvu­leikir auð­veldi þeim að mynda tengsl við aðra og við­halda sam­skiptum við vini. Það kann því ekki að koma á óvart að þeir voru mun lík­legri en stúlkur til þess að segj­ast eyða miklum tíma og pen­ingum í tölvu­leiki. 

Þetta er þróun sem hefur átt sér stað fyrir framan nefið á for­eldrum í um ára­tug, og hefur verið óvenju­hröð í bland við miklar tækni­fram­farir. 

Með hækk­andi aldri fækkar í hópi þeirra sem spila tölvu­leiki, engu að síður metur þriðj­ungur þeirra stráka sem spila tölu­leiki það sem svo að þeir verji miklum tíma í tölvu­leik­ina, sam­kvæmt könnun Mennta­vís­inda­sviðs. Þá leiddi önnur könnun í ljós að á árunum 2019 til 2023 vörðu 38 pró­sent íslenskra drengja í 7. …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár