Ef þú sérð eitthvað, segðu eitthvað

Sigríður Jóns­dóttir skrifar um Skammar­þrí­hyrn­ing­inn eftir leik­hóp­inn Sterta­bendu.

Ef þú sérð eitthvað, segðu eitthvað
Leikhús

Skammar­þrí­hyrn­ing­ur­inn

Höfundur Leikhópurinn Stertabenda
Leikstjórn Gréta Kristín Ómarsdóttir
Leikarar Árni Pétur Guðjónsson, Bjarni Snæbjörnsson, Embla Guðrúnar-Ágústsdóttir, Fannar Arnarsson, Kristrún Kolbrúnardóttir og Sindri Sparkle.

Leikmynd og búningar: Eva Signý Berger Dramatúrg: Egill Andrason Tónlist: Axel Ingi Árnason í samstarfi við Egil Andrason Ljósahönnun: Ólafur Ágúst Stefánsson Dans- og sviðshreyfingar: Cameron Corbett Leikgervi: Ray Milano Framleiðendur: Davíð Freyr Þórunnarson og Ragnheiður Maísól Sturludóttir

Borgarleikhúsið
Niðurstaða:

Stuðandi, sönn og sár sýning sem skilur eftir fjölmargar spurningar.

Gefðu umsögn

Á frum­sýn­ing­ar­dag Skammar­þrí­hyrn­ings­ins var höf­undur þessa pistils á gangi í miðbæ Reykja­víkur og mætti þremur ungum, íslenskum karl­mönnum sem virt­ust vera á leið út á lífið. Ekki frá­sögu fær­andi nema einn þeirra bar rauða der­húfu með hvítu letri á höfði, der­húfu sem á síð­ustu árum er orðin tákn­mynd amer­ískrar öfga­hyggju á hægri væng. Þetta er Ísland í dag. 

Skammar­þrí­hyrn­ing­ur­inn eftir leik­hóp­inn Sterta­bendu í leik­stjórn Grétu Krist­ínar Ómars­dóttur talar þráð­beint inn í íslenskan raun­veru­leika og inn í stærra alþjóð­legt sam­hengi. Áhorf­endum er boðið inn í heimi þar sem „vók“ eða „woke“ hug­mynda­fræði er safn­gripur og starfs­fólk, afsakið … starfs­menn … vinna hörðum höndum að svið­setja sög­una í þeirri von að við lærum af reynsl­unni.   

Við erum ekki að tala um ímynd­aða fram­tíð heldur blá­kaldan raun­veru­leika þar sem óæski­legar bækur eru fjar­lægðar af bóka­söfnum, óæski­leg list af lista­söfnum og óæski­legar skoð­anir úr mennta­stofn­unum. Sagan kennir okkur að næst verður óæski­legt fólk fjar­lægt úr sam­fé­lag­inu.  Ein teg­und af sögu­skoðun er nefni­lega sögu­eyð­ing, allt í nafni ímynd­aðar for­tíðar sem var aldrei til.  

Leik­hóp­ur­inn sam­anstendur af sex mann­eskjum á öllum aldri sem hafa mikið til mál­anna að leggja. Þau setja sig í ýmis hlut­verk, sum passa betur en önnur. Fremstur í flokki er Árni Pétur Guð­jóns­son sem glansar í hverju skrefi. Hann er Theódóra, doktor í sagn­fræði, Dórótea í Galdra­karl­inum í Oz og Karl, fyrr­ver­andi rík­is­sak­sókn­ari og pró­fessor emeritus í refsirétti. Hann er hjarta sýn­ing­ar­innar, iðandi af leik­gleði og lífi. Sindri Sparkle kemur hressi­lega á óvart en hann er betur þekktur sem uppi­stand­ari fremur en leik­ari. Atriðið um þær öfga­kenndu ákvarð­an­irnar sem karl­maður tekur til að kom­ast inn á kvennakló­sett er stór­kost­legt og ein­talið undir lokin hittir beint í sál­ina. Bjarni Snæ­björns­son og Fannar Arn­ars­son fá einnig tæki­færi til að skína, kúreka­rómans­inn var bráð­fynd­inn. En líkt og flestir í sýn­ing­unni eru þeir eft­ir­minni­leg­astir í ein­lægu augna­blik­unum þar sem sann­leik­ur­inn er sagður. Embla Guðrúnar-Ágúst­dóttir tekur áhorf­endur í kennslu­stund um dyggð­ar­skreyt­ingu og dans­at­riðið áhrifa­mikið. Veikasti hlekk­ur­inn í leik­hópnum er nýlið­inn Kristrún Kol­brún­ar­dóttir sem finnur ekki takt­inn í sýn­ing­unni en á nokkra góða spretti inn á milli, þá sér­stak­lega í pall­borðsum­ræð­unum. 

Samtöl og setn­ingar í sýn­ing­unni eru oftar en ekki bein til­vísun í „skoð­ana­skipti“ á sam­fé­lags­miðlum og opin­berum vett­vangi. Gréta Kristín heldur ágæt­lega á spöð­unum og finnur líf­rænan far­veg fyrir sýn­ing­una sem byggir á fjöl­mörgum ólíkum senum og senu­skiptum. Í heild­ina virkar umgjörðin þó ekki alltaf, kynn­ingin í for­salnum hefði getað átt sér stað inn í sal. Til hvers að taka áhorf­endur út fyrir sýn­ingu ef athöfnin er ekki notuð aftur? Sömu­leiðis er end­ur­tekna fjöl­skyldu­senan alltof löng og los­ara­leg. Loka­at­riðið var  þó ein­stak­lega áhrifa­ríkt þar sem allar hug­mynd­irnar smullu saman. 

Eva Signý Berger sem hannar leik­mynd og bún­inga er með á nót­unum og tínir allt til, hendir hug­myndum í pott og úr verður bún­inga­ka­bar­ett þar sem Litla sviðið fær að njóta sín. Pífur og pall­í­ettur í bland við boli merktum „Frelsi“ sem eru bein vísun í boli sem amer­ískir öfga-hægri­s­innar íklæð­ast en voru líka til sölu á ónefndum íslenskum við­burði í síð­asta mán­uði. Þetta er raun­veru­legt, við erum hér. 

Pall­borðsum­ræð­urnar strax eftir hlé er eft­ir­minni­legt þar sem rætt er um hvort að til­vist ein­stak­linga sé rétt­mæt. Minni­hluta­hópar dregnir fram sem dæmi um úrkynjun mann­kyns­ins og hvatn­ing til að snúa aftur til for­tíðar þegar allt var betra, heim­ur­inn var ein­faldur og kynin tvö. Gallinn við þessa orð­ræðu er að þessi heimur var aldrei til. Hinsegin fólk hefur alltaf verið til, líka trans og inter­sex fólk. Þessir sömu for­pok­uðu ein­stak­lingar sem gala sem hæst um „woke-isma“ þykj­ast líka hafa miklar áhyggjur af íslensk­unni, eins og tungu­málið hafi aldrei breyst eða þró­ast í ald­anna rás. 

Nokkrar góðar laumur er að finna í tón­list­inni samin af Axel Inga Árnasyni í sam­starfi við Egil Andrason. Þar má helst nefna stef sem óneit­an­lega minnir á kvik­myndir um ónefndan galdra­dreng sem kemur út úr skápnum og finnur sjálfan sig. Höfundur bókanna hefur í auð­valdi sínu tekið sér afstöðu gegn trans konum í nafni kven­rétt­inda sem leiddi til nýlegra laga­breyt­inga í Bret­landi. Sér­stak­lega ánægju­legt var að heyra „Somewhere“ úr West Side Story, lag úr söng­leik um tán­inga­ást samið af Leonard Bern­stein og Stephen Sondheim.  

Samkvæmt rann­sóknum er ein­ungis 2-3% af sam­fé­lag­inu trans og um 10% hinsegin. Þetta er öll ósköpin sem ákveð­inn hópur fólks telur vera taka yfir sam­fé­lagið þegar raunin er sú að þessi hópur vill ein­göngu sömu rétt­indi og hinir, mann­rétt­indi. Skammar­þrí­hyrn­ing­ur­inn er kannski tætt sýn­ing en vekur upp fjöl­margar spurn­ingar og hvetur áhorf­endur til að líta inn á við.  „Aldrei aftur“ er end­ur­tekið slag­orð í sýn­ing­unni sem má auð­veld­lega færa yfir á okkar tíma. Þessi „betri heimur“ sem þessi ákveðni hópur fólks töngl­ast á var aldrei til, hinsegin fólk aftur á móti hefur alltaf verið til og þau eru þess virði að berj­ast fyrir. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár