Dregið úr framlögum til umhverfis- og orkumála

Í fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar er skorið niður um 1,4 pró­sent til umhverfis- og orku­mála á sama tíma og ný metn­að­ar­full lofts­lags­á­ætlun er kynnt. Formaður Land­verndar segir nið­ur­skurð ríma illa við áætl­un­ina.

Jóhann Páll Jóhannsson
Jóhann Páll Jóhanns­son Umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra kynnti áherslur rík­is­stjórn­ar­innar í lofts­lags­málum í síð­ustu viku. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Framlög til umhverfis- og orku­mála í fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar lækka um 0,7 millj­arða króna að raun­virði frá fjár­lögum fyrra árs. Lækkunin nemur 1,4 pró­sent og mest er skorið niður hjá Lofts­lags- og orku­sjóði.

Sjóð­ur­inn, sem í dag­legu tali er nefndur Orku­sjóður, styður aðila sem ýmist vinna að verk­efnum sem minnka losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, binda slíkar loft­teg­undir var­an­lega eða nýta inn­lenda vist­væna orku betur. Lækkun styrkja til hans nemur 2,5 millj­örðum króna. „Er hún í takt við fallandi eft­ir­spurn eftir styrkjum úr sjóðnum,“ segir í frum­varp­inu.

Þá fellur niður fjár­veit­ing til tíma­bund­inna verk­efna upp á 1,1 millj­arð króna. Á móti kemur hækkun á heim­ild til ráð­stöf­unar los­un­ar­heimlda sem eykst um 0,8 millj­arða frá fyrra ári. „Nemur verð­mæti þeirra nú alls 3,1 ma.kr., þar af 1,7 ma.kr. sem útdeilt verður til flug­fé­laga,“ segir í frum­varp­inu.

Markmið um kolefnishlutleysi 2040

Umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, Jóhann Páll Jóhanns­son, kynnti í síð­ustu viku …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár