Brotthvarf að meðaltali hærra úr íslenskum háskólum en í OECD-ríkjum

Nið­ur­stöður nýrrar skýrslu OECD um háskóla­mál sýna að brott­hvarf er hærra á Íslandi en að með­al­tali í OECD-ríkjum. Þá segir að tryggja þurfi að íslenskir háskólar standi jafn­fætis öðrum OECD háskólum. „Þessar nið­ur­stöður stað­festa að háskóla­málin þurfa að njóta sér­stakrar athygli,“ segir Logi Ein­ars­son menn­ingar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráð­herra.

Brotthvarf að meðaltali hærra úr íslenskum háskólum en í OECD-ríkjum
Brott­hvarf of hátt Brott­hvarf er 18 pró­sent á Íslandi en að með­al­tali 13 pró­sent í OECD-ríkjum. Mynd: Víkingur

Brott­fall í íslenskum háskólum er hærra en með­al­tal OECD-ríkj­anna. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Efnahags og fram­fara­stofn­un­ar­innar – OECD –  sem birt var í gær. Þar segir að efla þurfi stuðn­ing við nýnema og tryggja gæði og kjör starfs­fólks háskóla á Íslandi. 

Í frétt á vef Stjórn­ar­ráðs­ins um skýrsl­una segir Logi Ein­ars­son menn­ingar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráð­herra um nið­ur­stöð­urnar: „Það er hollt að fá utan­að­kom­andi augu og sam­an­burð við önnur lönd. Þessar nið­ur­stöður stað­festa að háskóla­málin þurfa að njóta sér­stakrar athygli og tryggja þarf grunn­fjár­mögnun háskóla­stigs­ins til lengri tíma.“

Hann segir fram­tíð­ar­sýn fyrir háskóla­stigið þurfi að vera skýr og aðgengi­leg með lyk­il­mæli­kvörðum.

Log Ein­ars­sonTelur að tryggja þurfi grunn­fjár­mörgnun háskóla­stigs­ins.

Fjárveitingar lægri en á Norðurlöndum

Í frétt­inni segir: „Samkvæmt nýj­ustu gögnum námu með­al­út­gjöld á hvern ársnema í háskóla á Íslandi árið 2022 um 2,2 millj­ónum króna, sem er 20,5 pró­sent hærra en með­al­tal OECD-ríkja, en tæp­lega …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Það er ekki endilega víst að orsökin fyrir brotthvarfi úr háskólum sé háskólunum að kenna. Það er sennilega hægt að hugsa sér fullt af öðrum orsökum og kanski er orsökin samspil fleiri þátta.
    0
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Ætli hærra brotthvarf úr íslenskum háskólum geti skrifast að einhverju leyti á styttra skólaár, þar sem nemendur hafa minni tíma til að læra námsefnið. Ķæmi mér á óvart ef svo væri ekki.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár