Landsvirkjun gert að greiða 1,4 milljarð sekt fyrir „alvarleg brot“

Lands­virkjun var gert að greiða 1,4 millj­arða sekt fyrir alvar­leg brot á sam­keppn­is­lögum en upp­hæðin tekur mið af alvar­leika brot­anna og löngu brota­tíma­bili. Þá er einnig litið til þess að brotin hafi ekki hætt þótt þau væru til rann­sóknar og fyr­ir­tækið upp­lýst um að hátt­semin kynni að vera ólög­mæt.

Landsvirkjun gert að greiða 1,4 milljarð sekt fyrir „alvarleg brot“
For­stjóri Lands­virkj­unar Sam­keppn­is­eft­ir­litið birti í dag úrskurð þar sem Lands­virkjun er sögð hafa brotið með alvar­legum hætti og til langs tíma á sam­keppn­is­lögum. Mynd: Landsvirkjun

Lands­virkjun framdi „alvar­leg brot á sam­keppn­is­lögum,“ sam­kvæmt úrskurði Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins sem birtur var í dag. Þar kemur fram að ákvörð­unin varði verð­lagn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins á raf­orku til við­skipta­vina sinna, sem eru einnig keppi­nautar fyr­ir­tæk­is­ins í til­teknum útboðum Lands­nets.

Fyrir vikið þarf Lands­virkjun að greiða 1,4 millj­arða sekt, en ákvörðun upp­hæðar tekur mið af alvar­leika brot­anna og hinu langa brota­tíma­bili, en brotin stóðu yfir um fjög­urra ára skeið, frá 2017 til 2021.

Þá er einnig litið til þess að ekki hafi dregið úr brot­unum þrátt fyrir að Lands­virkjun hafi verið með­vituð um að hátt­semi fyr­ir­tæk­is­ins væri til rann­sóknar og kynni að vera ólög­mæt. Stjórn­vald­sekt er beitt til þess að draga úr lík­unum á að fyr­ir­tækið eða aðrir fari á svig við sam­keppn­is­lög að nýju. 

Keppninautar kvörtuðu

Rannsókn máls­ins hófst eftir að keppi­nautar Lands­virkj­unar, Orka Nátt­úr­unnar og N1 Rafmagn, beindu kvört­unum til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, þar sem full­yrt var að fyr­ir­tækið hefði …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GS
    Gunnar Snæland skrifaði
    Hvaða tilgangi þjóna þessir orkuheildsalar?
    Milliliðagróði og hækkun á verði til almennra notenda.
    Lögmál frjálsrar samkeppni virka ekki þegar "samkeppnisaðilar" eru taldir á fingrum annarar handar
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár