Gat á sjókví „í nokkurn tíma“ í Dýrafirði

Lax­eld­is­fyr­ir­tækið til­kynnti ekki um að gat væri á kvínni.

Gat á sjókví „í nokkurn tíma“ í Dýrafirði
Úr Dýra­firði Gat reynd­ist vera á lax­eld­is­kví Arctic Sea Farm í nokkurn tíma. Í for­grunni eru lax­eld­iskvíar á vegum fyr­ir­tæk­is­ins, en gatið reynd­ist vera á eld­is­kví utar í firð­inum. Mynd: Shutterstock

Gat hefur fund­ist á sjó­kví á eld­is­svæði Arctic Sea Farm við Eyr­ar­hlíð í Dýra­firði. Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu Mat­væla­stofn­unar eru vís­bend­ingar um „að gatið hafi verið á kvínni í nokkurn tíma án þess að fram­leið­andi hafi til­kynnt um til­vist þess til Mat­væla­stofn­unar“.

„Mat­væla­stofnun lítur málið alvar­legum augum og hefur hafið rann­sókn,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Lax­eld­is­fyr­ir­tækjum er gert að sinna eft­ir­liti með starf­semi sinni. Samkvæmt gögnum var neð­an­sjáv­ar­eft­ir­liti við Eyr­ar­hlíð sinnt á 30 daga fresti líkt og reglu­gerð kveður á um og til­kynnt til stofn­un­ar­innar að ekk­ert athuga­vert hefði komið fram við neð­an­sjáv­ar­eft­ir­litið. Gatið var u.þ.b. 20x40 cm að stærð.

Daníel Jak­obs­sonFram­kvæmda­stjóri Arctic Fish, sem rekur eld­isk­vína.

Lokið var við að slátra öllum laxi úr eld­isk­vínni þann 6. júlí síð­ast­lið­inn. Stofn­unin hefur kallað eftir frek­ari gögnum frá Arctic Sea Farm sem gætu varpað skýr­ari ljósi á atvikið. Að rann­sókn lok­inni verður gefin út eft­ir­lits­skýrsla um rann­sókn­ina og birt á mæla­borði fisk­eldis á heima­síðu Mat­væla­stofn­unar.

Arctic Sea Farm hf. hefur starfs­leyfi til eldis á lax­fiskum með  hámarks­lífmassa allt að 10.000 tonnum í sjó­kvíum í Dýra­firði. Félagið er að öllu leyti í eigu Arctic Fish Holding AS, sem er norskt lax­eld­is­fyr­ir­tæki. End­an­legt móð­ur­fé­lag þess heitir MOWI ASA.

Félagið gerir upp í evrum, en það hagn­að­ist um 1,9 millj­arða króna í fyrra og var fjöldi starfs­manna í heild 52.

For­stjóri Arctic Fish er Daníel Jak­obs­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri á Ísafirði og for­maður bæj­ar­ráðs. Félagið heldur úti fisk­eldi á tíu stöðum í fimm fjörðum: Pat­reks­firði, Tálkna­firði, Arnar­f­irði, Dýraf­irði og Ísa­fjarðar­djúpi.

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár